Fékk mörghundruð milljóna kúlulán - fasteignir yfirveðsettar 29. apríl 2010 18:28
Jón Ásgeir Jóhannesson fékk tvö tíu ára kúlulán frá óþekktum aðila í síðasta mánuði, samtals upp á 440 milljónir króna. Lánin eru með veði í tveimur fasteignum í eigu Ingibjargar Pálmadóttur, eiginkonu Jóns Ásgeirs. Fasteignirnar eru nú yfirveðsettar. Fréttastofa hefur undir höndum gögn sem staðfesta þetta. Um er að ræða tvö veðskuldabréf, sem var þinglýst hjá sýslumanninum í Reykjavík þann 7. apríl síðastliðinn. Skuldabréfin eru óverðtryggð, með meðalvöxtum. Annað lánið er að upphæð 270 milljónir króna, tryggt með 2. veðrétti í stórri fasteign í miðbæ Reykjavíkur. Hitt skuldabréfið er að upphæð 170 milljónir króna, tryggt með 2. veðrétti í annarri veglegri fasteign við sömu götu. Umræddar fasteignir eru í eigu Ingibjargar Pálmadóttur, eiginkonu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Jón Ásgeir er skráður skuldari og skrifar undir skuldabréfin sem slíkur. Bæði lánin eru kúlulán, með einni afborgun höfuðstóls og vaxta þann 31. desember 2020. Kröfuhafi, það er að segja lánveitandi, er handhafi, og því liggur ekki fyrir hver hann er. Með þessum nýju veðsetningum eru báðar eignirnir nú veðsettar langt umfram fasteignamat. Jón Ásgeir og Ingibjörg vildu ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað.
Mest lesið „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Verðbólga stendur í stað Viðskipti innlent Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Viðskipti erlent Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Sjá meira