Tap lánastofnana á gengislánum nemur 108 milljörðum 12. nóvember 2010 12:10
Samkvæmt nýju frumvarpi efnahags- og viðskiptaráðherra um gengistryggð lán er tap lánastofnana á ólögmæti þessara lána alls 108 milljarðar króna. Frumvarpið felur í sér að öll gengistryggð bíla- og fasteignalán verði talin í sama flokki. Frumvarp var samið efnahags- og viðskiptaráðuneytinu af því tilefni að Hæstiréttur kvað upp dóma hinn 16. júní 2010 sem skáru úr um ólögmæti gengistryggðra lána og dóms 16. september 2010 um vaxtareikning slíkra lána. Í athugasemdum með frumvarpinu segir að þótt dómar Hæstaréttar hafi létt af mestu óvissunni sé engu að síður hætt við að ágreiningur verði gerður um lögmæti fjölda samninga á víðtæku sviði skammtíma- og langtímafjármögnunar. Þá hafi vaknað spurningar um jafnræði meðal skuldra, einkum á neytendamarkaði. Meginmarkmið frumvarpsins sé því að draga úr þessari óvissu. Til grundvallar séu lögð þau sanngirnisrök að sambærileg mál fái sambærilega niðurstöðu auk þess að tryggja réttaröryggi við uppgjör lána. Fram kemur í frumvarpinu að mat á kostnaði fjármálafyrirtækja vegna dóma Hæstaréttar um ólögmæti gengistryggðra lána liggi nú fyrir en samkvæmt greiningu Fjármálaeftirlitsins er tap lánastofnana vegna ólögmætis gengistryggðra lána alls 108 milljarðar króna. Tilgangur frumvarpsins er að fyrst og fremst að gæta jafnræðis meðal einstaklinga sem tekið hafa lán í erlendri mynt eða lán sem tengjast erlendri mynt með einum eða öðrum hætti. Ljóst er að dómsvaldið er alla jafna ekki til þess bært að skýra almennt réttarástand með því að setja almenna réttarreglu og í þessu tilviki leiðir að auki fjöldi afbrigða lánssamninga og réttarfars- og málsforræðisreglur til þess að það kunni að verða langvinnt og torsótt að ná fram skýrleika fyrir allan almenning.
Mest lesið Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira