Öllum hugmyndum tekið fagnandi 9. október 2010 09:00 Katrín Jakobsdóttir. Mennta- og menningarmálaráðuneytið skoðar hugmyndir STEFs varðandi gjöld á nettengingar.
Verið er að skoða leiðir innan menntamálaráðuneytisins til þess að sporna við ólöglegu niðurhali á tónlist. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra segir að aukin gjöld á nettengingar séu ein þeirra leiða sem verið sé að athuga. „Við erum að standa fyrir heildarendurskoðun varðandi höfundarétt,“ segir Katrín. „Það er nauðsynlegt að finna leiðir til þess að neytendur taki löglega kosti fram yfir ólöglega. Vissulega eru kostir og gallar við allar hugmyndir en það verður að halda þessari umræðu áfram.“ Alex MacNeil, forstjóri tónlistarsíðunnar Gogoyoko, skilur hugmyndirnar um gjöldin, en STEF lagði þær fram á fundi sem haldinn var í september. „Ég er mjög sammála því að tónlistarmenn eigi að fá greitt fyrir sölu og dreifingu á tónlist sinni á netinu.“ Gogoyoko borgar þeim listamönnum sem eru með tónlist á síðunni tvö sent í hvert sinn sem lögum þeirra er streymt. Fjörutíu prósent af auglýsingatekjum fyrirtækisins renna óskertar til tónlistarmannanna og voru í fyrsta sinn greiddar út nú 1. október. „Það er nauðsynlegt að hugsa öðruvísi og leiðirnar fyrir listamenn til að fá greitt fyrir tónlistina sína á netinu þurfa að vera fjölbreyttar,“ segir hann. Gylfi Blöndal, fulltrúi listamanna hjá Gogoyoko, segir að nauðsynlegt sé að gleyma því ekki að ólöglegt niðurhal sé lögbrot og nauðsynlegt sé að grípa til aðgerða. „Maður fagnar öllum hugmyndum að lausnum sem koma fram, þær hafa ekki verið margar,“ segir Gylfi. - sv
Mest lesið Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Forstjóri McDonald's hættir vegna sambands við samstarfsmann Viðskipti erlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira