Skilanefndir Landsbankans og Glitnis segjast ekki draga lappirnar 18. apríl 2010 19:17
Það fylgir því mikil ábyrgð að vísa málum einstaklinga til sérstaks saksóknara, segir formaður skilanefndar Glitnis. Því þurfi að vanda til verka. Skilanefndir Landsbankans og Glitnis segjast ekki draga lappirnar í því að senda meint lögbrot bankanna í frekari rannsókn, en Kaupþingsmál hafa verið meira áberandi eftir hrun. Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis dregur upp dökka mynd af rekstri allra stóru bankanna fyrir hrun. Mál tengd Kaupþingi hafa hins vegar verið mest áberandi þegar kemur að rannsóknum sérstaks saksóknara. Jóhannes Rúnar Jóhannsson, skilanefndarmaður í Kaupþingi, segir að skilanefndin hafi jafnóðum upplýst yfirvöld um mál þar sem grunur leikur á um lögbrot. Spurningin er hins vegar hvers vegna meint lögbrot í Landsbankanum og Glitni hafa ekki verið eins hávær í umræðunni. „Nei það er algjörlega af og frá. Þvert á móti sendum við allt um leið og við verðum varir við eitthvað," segir Páll Benediktsson, upplýsingafulltrúi skilanefndar Landsbankans, aðspurður hvort skilanefndin hafi dregið lappirnar í því að senda mál áfram til yfirvalda. Páll segir að skilanefndin hafi nú þegar sent nokkur mál til FME og sérstaks saksóknara. Meginástæðan fyrir því að ekki hafi fleiri mál verið send úr Landsbankanum sé sú að Deloitte í London sé að fara í gegnum öll málefni bankans. „Sú vinna er í gangi og á meðan að svo er getum við ekki tekið afstöðu til fleiri mála," segir Páll. Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis, segir að þar á bæ hafi sá kostur verið valinn að flest málin séu rannsökuð ítarlega áður en þau eru send til yfirvalda. Skilanefndin hafi átt gott samstarf við sérstakan saksóknara þó hún hafi ekki formlega sent mörg mál til hans. „Hversu mikið sem menn vilja flýta sér og drífa sig í að leiða mál til lykta þá er það mjög viðurhlutamikil ákvörðun að vísa málum einstaklinga til sérstaks saksóknara og vanda málin og reyna ekki að sveiflast alveg frá öfgunum sem voru fyrir hrun og eru eftir hrun," segir Árni.
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Súperdósin snýr aftur Neytendur Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira