Þurfa líklega að greiða tugi milljóna í skatt 18. apríl 2010 18:45
Fyrrverandi stjórnarmaður og framkvæmdastjóri Glitnis munu að öllum líkindum þurfa að greiða tugi milljóna króna í skatt vegna ólögmætra arðgreiðslna sem þeir fengu í sinn hlut. Glitnir veitti lán fyrir arðgreiðslunum sem námu 300 milljónum króna. Samkvæmt hlutafélagalögum má ekki greiða út arð á fyrsta starfsári félags. Þá má ekki greiða út arð ef fyrirtækið hefur verið rekið með tapi eða ef arðgreiðslustofninn er neikvæður. Skattyfirvöld skoða nú arðgreiðslur fimm ár aftur í tímann en grunur leikur á að hundruð fyrirtækja hafi greitt út ólögmætan arð sem nemur nokkrum milljörðum króna. Í skýrslunni eru tvö skýr dæmi um ólögmætar arðgreiðslur. Í maí 2008 veitti Glitnir lán til eignarhaldsfélaga fjórtán starfsmanna bankans og eins stjórnarformanns, alls að upphæð 8,3 milljarðar króna. Eitt þessara félaga, HG Holding, í eigu stjórnarmannsins Hauks Guðjónssonar fékk 480 milljónir að láni frá bankanum. 330 milljónir fóru í að kaupa hlutabréf, 150 í arðgreiðslur til hluthafa HG Holding, eða Hauks sjálfs. KÞG Holding í eigu Kristins Þórs Geirssonar, framkvæmdastjóra, fékk lán upp rúman 1,1 milljarð króna. Einum milljarði var varið til kaupa á hlutabréfum í Glitni, rest fór í arðgreiðslur til hluthafa félagsins, þ.e. Kristins. Haft var eftir stjórnarformanninum, Þorsteini Má Baldvinssyni, í Viðskiptablaðinu á þessum tíma að: „Fyrirtæki Kristins hefur góða eiginfjárstöðu og það hefur lagt fram tryggingar fyrir láninu sem uppfylla að öllu kröfur bankans hvað slíkt varðar." Tap félagsins hafði þó verið 50 milljónir króna árið áður og reyndar var hvorugt félag rekið með hagnaði árið sem arðgreiðslan féll til. Af þessu er ljóst að Haukur og Kristinn munu að öllum líkindum þurfa að greiða tugi milljóna króna í skatt vegna arðgreiðslnanna. Alla jafna þarf að greiða fjármagnstekjuskatt af arðgreiðslum. Sá skattur var 10% en er í dag 18%. Ólögmætar arðgreiðslur eru hinsvegar skattlagðar sem launatekjur, eða í uþb 40% skattþrepi. Ofan á það hafa skattyfirvöld heimild til að leggja 25% álag.
Mest lesið „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur „Ég hef aldrei spilað golf“ Viðskipti innlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Verðbólga stendur í stað Viðskipti innlent Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós „Ég hef aldrei spilað golf“ Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Sjá meira