Viðskipti innlent

Vilja hefja byggingu útgerðarmiðstöðvar á Akranesi

Faxaflóahafnir og Akraneskaupstaður leita nú að áhugasömum aðilum til að reisa útgerðarmiðstöð á Akranesi. Unnið hefur verið að undirbúningi málsins um nokkurt skeið. Um er að ræða aðstöðu fyrir útgerð smábáta og aðra hafnsækna starfsemi við Akraneshöfn.

Fjallað er um málið á vefsíðu Faxaflóahafna. Þar segir að fyrir liggi hönnun byggingar og tilboð í byggingu hennar og nú er leitað eftir áhugasömum aðilum til þess að taka þátt í verkefninu.

Án nokkurs vafa eru aðstæður í Akraneshöfn fyrir smábátaútgerð góðar. Þar eru góðar flotbryggjur, fyrirtaks aðstaða til löndunar, öflugur fiskmarkaður í næsta nágrenni og fyrirtaks þjónusta að öðru leyti.

Óskað er eftir áhugasömum aðilum til þess að taka þátt í því verkefni að reisa "útgerðarmiðstöð" á Akranesi, en nánari upplýsingar gefur Vignir Albertsson, skipulagsfulltrúi Faxaflóahafna sf.

„Ef nægur fjöldi áhugasamra aðila er tilbúinn til að taka þátt í verkefninu getur það farið af stað á þessu ári og byggingin orðið tilbúin á fyrri hluta næsta árs," segir á vefsíðunni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×