Hagstofan: Atvinnuleysi 7,6% á fyrsta ársfjórðungi 21. apríl 2010 09:36
Á fyrsta ársfjórðungi 2010 voru að meðaltali 13.600 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 7,6% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 9,4% hjá körlum og 5,7% hjá konum. Þegar litið er til aldurs var atvinnuleysið mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára, eða 16,4%. Frá fyrsta ársfjórðungi 2009 til fyrsta ársfjórðungs 2010 fjölgaði atvinnulausum um 900 manns.Þessar niðurstöður eru meðal efnis í nýju hefti Hagtíðinda um vinnumarkað á fyrsta ársfjórðungi 2010 sem birt hefur verið á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að á fyrsta ársfjórðungi 2010 var atvinnuleysi 8,6% á höfuðborgarsvæðinu en 5,9% utan þess. Þeir sem hafa verið atvinnulausir í 12 mánuði eða lengur eru skilgreindir sem langtímaatvinnulausir. Á fyrsta ársfjórðungi 2010 höfðu um 2.500 manns verið atvinnulausir svo lengi, eða um 18,1% atvinnulausra, en voru á sama tímabili 2009 um 600 manns. Atvinnulausir teljast þeir sem ekki hafa atvinnu í viðmiðunarviku könnunarinnar, eru að leita að vinnu og geta hafið störf innan tveggja vikna eða hafa fengið vinnu sem hefst innan 3 mánaða.Fjöldi starfandi á fyrsta ársfjórðungi 2010 var 163.900 manns og fækkaði um 1.600 frá sama tíma ári áður. Á vinnumarkaði voru alls 177.500 manns sem jafngildir 79,7% atvinnuþátttöku. Atvinnuþátttaka karla var 83,4% og kvenna 76%. Til þeirra sem eru á vinnumarkaði teljast bæði þeir sem eru starfandi og atvinnulausir. Fólk telst vera starfandi ef það hefur unnið eina klukkustund eða meira í viðmiðunarviku könnunar eða verið fjarverandi frá starfi sem það gegnir að öllu jöfnu. Á fyrsta ársfjórðungi 2009 voru alls 178.200 á vinnumarkaði og atvinnuþátttaka mældist 79,5%. Atvinnuþátttaka karla var 83,3% og kvenna 75,5%.Á fyrsta ársfjórðungi 2010 var meðalfjöldi vinnustunda 39 klst. hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 43,3 klst. hjá körlum en 34,2 klst. hjá konum. Meðalfjöldi vinnustunda hjá þeim sem voru í fullu starfi var 44,8 klst. en 22,4 klst. hjá þeim sem voru í hlutastarfi.Á fyrsta ársfjórðungi 2009 var meðalfjöldi vinnustunda 38,9 klst., 43,3 klst. hjá körlum en 34 klst. hjá konum. Þeir sem voru í fullu starfi unnu 44,7 klst. að jafnaði en þeir sem voru í hlutastarfi unnu að jafnaði 21,4 klst.
Mest lesið Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Atvinnulíf Spá aukinni verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Sjá meira