Stækkun verksmiðju Actavis í Hafnarfirði er á áætlun 3. ágúst 2010 10:30
Framkvæmdir við stækkun lyfjaverksmiðju Actavis í Hafnarfirði ganga samkvæmt áætlun. Gert er ráð fyrir að hefja framleiðslu í nýja hlutanum um áramót. Við stækkunina eykst framleiðslugetan á Íslandi um 50%, eða í um einn og hálfan milljarð taflna á ári. Jón Gunnar Jónsson, framkvæmdastjóri Actavis hf á Íslandi, segir mikilvæga þætti í ferlinu þegar frágengna. "Við höfum skrifað undir samninga um kaup á öllum tækjabúnaði fyrir stækkunina og miðum við að hann verði afhentur fljótlega í haust. Það er reiknað með að uppsetning og svokölluð gilding á búnaðinum taki um 2-3 mánuði - þetta er flókinn tækjabúnaður sem þarf að uppfylla ýtrustu kröfur til lyfjaframleiðslu. Stækkunin er mjög mikilvæg fyrir starfsemina á Íslandi bæði til að sinna þeirri eftirspurn sem er eftir vörum frá fyrirtækinu og einnig til að styrkja stöðu fyrirtækisins til framtíðar og þá með möguleika til að sinna enn fjölbreyttari framleiðslu," segir Jón Gunnar í tilkynningu um málið. Jón Gunnar segir að um 15-25 iðnaðarmenn hafi unnið að stækkuninni að staðaldri, auk þess sem fimm arkítekta- og verkfræðistofur komi að hönnun húsnæðisins. Þá sé ótalið vinnuframlag starfsmanna Actavis vegna stækkunarinnar, en þeir búa yfir sérþekkingu á lyfjaiðnaði sem fáir hafa á Íslandi. Ekki hefur þurft að kaupa sérhæfða ráðgjöf erlendis frá til að sinna verkefninu. Lyfjaverksmiðjan í Hafnarfirði hefur verið keyrð á hámarksafköstum síðustu misserin og er hún þegar fullbókuð fram á næsta ár. Undir venjulegum kringumstæðum má reikna með fyrirliggjandi pöntunum til þriggja mánaða, en nú eru staðfestar pantanir fram í febrúar á næsta ári. Um 95% framleiðslunnar eru flutt út, en útflutningur lyfjavara var um 2,4% af heildarvöruútflutningi landsmanna á síðasta ári. Í maí var vöktum í verksmiðjunni fjölgað úr þremur í fjórar og starfsfólki bætt við í pökkun og töfluslætti, auk þess sem ráðið hefur verið í störf á gæðasviði. Starfsfólki verður enn fjölgað á næstu mánuðum í fyrrnefnd störf og á fleiri sviðum í tengslum við stækkunina. Reiknað er með að starfsmönnum í verksmiðjunni fjölgi um 50 á þessu ári og og er þegar búið að ráða um 30 manns á árinu. Lyfjaverksmiðjur Actavis eru alls 18 talsins í 13 löndum. Ákvörðunin um að stækka íslensku verksmiðjuna til að bregðast við aukinni eftirspurn ræðst m.a. af því að ekki hlýst kostnaður eða tafir af því að flytja framleiðslu lyfja annað. Slíkt getur tekið um tvö ár og kallar á viðamiklar skráningarbreytingar í þeim löndum þar sem lyfin eru seld.
Mest lesið Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Neytendur Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent Kaldvík fær enn frekari frest Viðskipti innlent Fleiri fréttir Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Sjá meira