Viðskipti innlent

Starfsemi Sementsverksmiðjunnar tryggð

Sementsverksmiðjan hefur átt við rekstravanda að stríða í nokkurn tíma. Nú er því lokið.
Sementsverksmiðjan hefur átt við rekstravanda að stríða í nokkurn tíma. Nú er því lokið.

Starfsemi Sementsverksmiðjunnar á Akranesi hefur verið tryggð með nýju hlutafé frá Björgun ehf. og norska sementsframleiðandanum Norcem AS og fjárhagslegri endurskipulagningu með aðkomu Arion banka og Lýsingar.

Björgun og Norcem leggja strax fram 120 milljónir króna sem nýtt hlutafé og verða fyrirtækin aðaleigendur verksmiðjunnar. Björgun og Norcem skuldbinda sig einnig til þess að leggja allt að 50 milljónum króna viðbótahlutafé til verksmiðjunnar síðar á árinu.

Mikill samdráttur hefur orðið í byggingariðnaði frá hruni bankanna. Rekstur Sementsverksmiðjunnar hefur því verið afar erfiður. Nýtt hlutafé tryggir áframhaldandi sementsframleiðslu á Íslandi og ver þau 130 störf sem verksmiðjan skapar. Áætlanir stjórnenda verksmiðjunnar gera ráð fyrir því að sementsframleiðsla aukist á ný árið 2012.

Arion banki og Lýsing eru minnihlutaeigendur í Sementsverksmiðjunni og stefna á að selja hlut sinn innan tveggja til þriggja ára.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×