Viðskipti innlent

Afkoma Landsbankans jákvæð um rúma níu milljarða

Landsbankinn.
Landsbankinn.

Afkoma NBI hf. (Landsbankans) var jákvæð um 9,4 milljarða króna eftir skatta á fyrri helmingi ársins en þar af nam hagnaður annars ársfjórðungs tæpum 1,1 milljarði króna.

Til samanburðar var nam hagnaður ársins 2009 14,3 milljörðum króna. Rekstrarárangur bankans var í raun enn betri, ef undan er skilin afkomutengd gjaldfærsla til LBI hf. (gamla Landsbankans). Afkoma eftir skatta var þannig 15,4 milljarðar eða sem samsvarar 19,6% arðsemi eigin fjár.

Eiginfjárhlutfall Landsbankans var 16,7% sem er vel umfram þá lágmarkskröfu sem Fjármálaeftirlitið gerir til bankans.

Annar ársfjórðungur einkenndist af bið eftir dómi Hæstaréttar um lögmæti erlendra lána sem síðan féll 16. júní. Landsbankinn hefur með sérstökum varúðarfærslum tekið tillit til niðurstöðu þess dóms og einnig dóms Hæstaréttar um vaxtaviðmið gengistryggðra lána sem féll 16. september.

Vegna þessa gjaldfærði bankinn um 8,3 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi. Stærstur hluti þeirrar fjárhæðar er vegna virðisrýrnunar lána SP-Fjármögnunar, dótturfélags bankans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×