Lokahnykkur á fjárhagslegri endurskipulagningu Icelandair 21. október 2010 10:28
Lokið er endanlega samningum um fjárhagslega endurskipulagningu Icelandair Group hf. sem tilkynnt var um í sumar. Skjalagerð tók mun lengri tíma en upphaflega var gert ráð fyrir, en í morgun voru allir samningar undirritaðir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Þar segir að endurskipulagningin á sér stað með þrennum hætti. Í fyrsta lagi kemur nýtt hlutafé sem verður greitt inn með reiðufé eftir að skráningarlýsing hefur verið birt í kauphöll. Fjárfestar hafa skráð sig fyrir um 5,5 milljörðum króna að markaðsvirði í nýju hlutafé á genginu 2,5 sem jafngildir ríflega 2,2 milljörðum nýrra hluta í Icelandair Group hf. Í öðru lagi hafa stærstu lánveitendur Icelandair Group breytt skuldum að fjárhæð 3,6 milljarðar króna í hlutafé miðað við gengið 5, þannig að þeir munu skrá sig fyrir 720 milljón nýjum hlutum. Heildarhlutafjárhækkun mun þannig nema um 2,9 milljörðum nýrra hluta að nafnvirði. Í þriðja lagi lækka vaxtaberandi skuldir um ríflega 10 milljarða króna með yfirfærslu og sölu á tilteknum eignum sem ekki eru hluti af kjarnastarfsemi félagsins. Í kaupsamningum vegna eignasölunnar, sem undirritaðir voru í morgun, eru hefðbundnir fyrirvarar um og frágang formsatriða í tengslum við söluna, svo sem samþykki opinberra aðila, eftir því sem við á. Söluhagnaður vegna sölu eignanna nemur um 3,2 milljörðum króna en að teknu tilliti til skatta og þýðingarmunar eru áhrif á eigið fé jákvæð um 0,5 milljarða króna. Samtals lækka vaxtaberandi skuldir um tæpa 14 milljarða króna og verða þær um 26 milljarðar króna eftir endurskipulagninguna. Icelandair Group hf. fyrirhugar að safna u.þ.b 2,5 milljörðum króna til viðbótar með útgáfu nýs hlutafjár. Tilkynnt verður síðar um fyrirkomulag og tímasetningu þess útboðs. Icelandair Group hafði áformað að birta uppgjör 3. ársfjórðungs í viku 44. Vegna vinnu við fjárhagslega endurskipulagningu hefur uppgjörsvinna tafist og félagið hefur ákveðið að fresta birtingu uppgjörs til 15. nóvember. Starfsemi samstæðunnar hefur að mestu gengið vel að undanförnu og betur en áætlanir. Félagið hefur því hækkað EBITDA spá ársins 2010 úr 8,5 milljörðum króna í 9,5 milljarða króna.
Mest lesið Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Bíóinu í Álfabakka lokað í janúarlok Viðskipti innlent Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira