Viðskipti innlent

Nýjar valdablokkir munu rísa

Áhrifamiklar valdablokkir hafa verið ráðandi hér með einum eða öðrum hætti um nokkurra áratuga skeið. Segja má að Kolkrabbinn og Smokkfiskurinn, birtingarmyndir Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, hafi ráðið lögum og lofum jafnt í stjórnmálum sem viðskiptalífi í einni eða annarri mynd allt frá því sjálfstæði frá Dönum árið 1944 var enn volgt og fram yfir einkavæðingu Landsbankans og Búnaðarbankans árið 2003. Taugin var reyndar enn römm eftir sölu bankanna enda kaupendurnir hliðhollir flokkunum; í tilviki Landsbankans fylgdi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins með í kaupunum auk þess sem fyrrverandi ráðherra Framsóknarflokksins tók við Búnaðarbankanum úr höndum flokks­systkina sinna.

Átta valdahóparJón G. Hauksson, ritstjóri tímaritsins Frjálsrar verslunar, fann átta valdahópa í greiningu sinni á valdablokkum landsins árið 2003. Hóparnir tengdust bæði gömlu klíkunum og þeim sem höfðu verið að líta dagsins ljós í smásöluverslun og fjármálageiranum eftir einkavæðingu bankanna auk lífeyrissjóða landsins sem féllu í eina valdablokk viðskiptalífsins.

Niðurstöður rannsóknar Bryndísar Ísfoldar Hlöðversdóttur á valdablokkunum fjórum árum síðar bentu til töluverðra tengsla á milli eldri og nýrri hópa. Bryndísi taldist til að árið 2003 hefðu 23 einstaklingar, sem allt voru karlmenn, tilheyrt valdablokkinni. Fjórum árum síðar hefðu 16 þeirra setið í stjórnum stærstu fyrirtækja landsins.

Valdablokkir fallaFlestir þeirra sem Fréttablaðið hefur rætt við eru sammála um að valdablokkirnar hafi að mestu hrunið til grunna með falli bankanna og uppgjörsins sem fylgdi í kjölfar stjórnarslita í upphafi árs 2009. Þeir sem hafi komið við sögu í gegnum árin hafi tapað gífurlegum fjármunum, vinni að því hörðum höndum að halda því litla sem eftir standi á meðan aðrir séu undir smásjá yfirvalda vegna gruns um misferli. Þá hefur hluti valdaklíkunnar fyrrverandi ekki talið sér vært hér á landi og farið utan.

Þótt viðmælendur Fréttablaðsins séu ekki á einu máli um það hvar völdin liggi í dag eru þeir sammála um að rykið hafi enn ekki sest eftir hrunið, fulltrúar fyrrverandi valdablokka klóri í bakkann en muni líklega ekki hafa erindi sem erfiði. Vald þeirra heyri til tíma sem sé að líða undir lok og að nýir valdhafar muni taka við. Hverjir það verði sé ekki gott að segja.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×