NBI skilaði 3,5 milljarða hagnaði á þriðja ársfjórðungi 26. nóvember 2010 10:08 Steinþór Pálsson er forstjóri NBI.
Afkoma NBI hf. (Landsbankans) var jákvæð um tæpa 3,5 milljarða króna eftir skatta á þriðja ársfjórðungi 2010. Samanlagður hagnaður bankans á fyrstu 9 mánuðum ársins nemur 12,9 milljörðum króna. Arðsemi eigin fjár fyrstu 9 mánuðina er 10,9%. Í tilkynningu segir að til samanburðar nam hagnaður ársins 2009 14,3 milljörðum króna. Eiginfjárhlutfall Landsbankans er nú 17,3%. Það er vel umfram þá 16% kröfu sem Fjármálaeftirlitið gerir til bankans. Þriðji ársfjórðungur markaðist af breytingum á innra starfi bankans, en á þessu tímabili var bankanum mótuð ný stefna, nýtt skipurit samþykkt og auglýstar lausar til umsóknar allar átta stöður framkvæmdastjóra. Að öðru leyti var áfram beðið eftir niðurstöðum áhrifa af dómi Hæstaréttar um lögmæti erlendra lána sem féll 16. júní. Landsbankinn hefur með sérstökum varúðarfærslum tekið tillit til niðurstöðu þess dóms og einnig dóms Hæstaréttar um vaxtaviðmið gengistryggðra lána sem féll 16. september. Vegna þessa gjaldfærði bankinn um 8,3 milljarða króna strax á öðrum ársfjórðungi. Stærstur hluti þeirrar fjárhæðar er vegna virðisrýrnunar lána SP-Fjármögnunar, dótturfélags bankans. Úrlausn skuldamála og efling atvinnulífs stærstu verkefni bankakerfisins Steinþór Pálsson bankastjóri Landsbankans segist sáttur við rekstur bankans á þriðja ársfjórðungi. Hann segir hins vegar að þessir mánuðir hafi einkennst af kyrrstöðu. ,,Landsbankinn vill vera hreyfiafl í íslensku samfélagi og ætlar sér forystuhlutverk í uppbyggingu atvinnulífs. Í þeim tilgangi hefur bankinn meðal annars ákveðið að selja hratt þau fyrirtæki sem hann eignast og er nýleg sala iðnfyrirtækisins Límtrés Vírnets til marks um það," segir Steinþór Pálsson. „Lyfjadreifingarfyrirtækið Parlogis var selt í júlí og með þessu móti viljum við reyna að koma hreyfingu á markaðinn og örva hann." Landsbankinn reyndi líka að selja verslunarmiðstöðina Smáralind en varð að hætta við vegna þess að tilboðin voru óviðunandi. Þar voru erlendir fjárfestar áhugasamir en drógu sig í hlé vegna þessarar biðstöðu og miklu óvissu sem hér ríkir. Úr þessu ástandi verður að bæta." Steinþór segir að meginmarkmið bankans sé eftir sem áður að hraða uppgjöri skuldamála heimila og fyrirtækja og búa þannig um hnúta að sem flestir uni sæmilega sáttir við sitt. ,,Við höfum á undaförnum mánuðum unnið að endurútreikningi erlendra lána sem viðskiptavinum býðst að breyta í íslensk, til samræmis við fyrirliggjandi lagafrumvarp og við höfum unnið að úrbótum á þeim lausnum sem við bjóðum fyrir fyrirtæki og einstaklinga í samráði við stjórnvöld og á vettvangi Samtaka fjármálafyrirtækja. Við bindum vonir við að þessi vinna skili okkur vel áleiðis," segir Steinþór.
Mest lesið Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Viðskipti innlent EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Sjá meira