Getum sjálf kennt okkur um kreppuna Jón Hákon Halldórsson skrifar 21. maí 2010 07:00 Jóhanna segir að hrunið hafi reynst Íslendingum dýrt. Mynd/ Anton.
Ísland er hugsanlega komið lengra á veg með að fást við alþjóðafjármálakreppuna en mörg önnur ríki í Evrópu, segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í grein sem birtist eftir hana í Businessweek. Fjármálakreppan og eldgosið við Eyjafjallajökul eru Jóhönnu hugleikin í greininni. Hún segir að mennirnir séu máttvana gagnvart náttúruöflunum. En þegar kemur að alþjóðafjármálakreppunni getum við engum kennt um nema okkur sjálfum. Einkavæddir bankar hafi nýtt sér ódýr lán og þannig stækkað margfalt í hlutfalli við íslenska hagkerfið. Bankarnir hafi svo hrunið þegar að alþjóðafjármálakreppan skall af fullum þunga á okkar hluta heimsins. Jóhanna segir að hrun hagkerfisins hafi reynst Íslendingum dýrt og muni áfram kosta sársauka. Hins vegar sé uppgjörið hafið af fullum krafti. Bankarnir hafi verið endurreistir. Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis, sem komin er út, sé grundvöllur endurreisnar og að vinna sérstaks saksóknara sé orðin áþreifanleg. Þá segir Jóhanna í greininni að grunnstoðir hagkerfisins standi þrátt fyrir allt föstum fótum og að niðursveiflan í hagkerfinu hafi ekki orðið eins mikil og óttast hafi verið í fyrstu. Allir hagvísar bendi til þess að hagkerfið muni ná bata.
Mest lesið Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Viðskipti innlent Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Sjá meira