Dótturfélög Landsbankans hafa frítt spil um launastefnu Þorbjörn Þórðarson skrifar 21. maí 2010 12:08
Dótturfélögum Landsbankans er gefið frítt spil með launastefnu eftir að Samkeppniseftirlitið gerði þá kröfu um að félögin yrðu færð frá bankanum. Nú hefur Kjararáð ekkert um laun stjórnenda þessara fyrirtækja að segja. Landsbankinn segir að launastefna hjá dótturfélögum sé hins vegar ekki frábrugðin stefnu bankans og að þar séu engir hálaunamenn. Samkvæmt lögum þá hefur Kjararáð umsögn um laun bankastjóra Landsbankans þar sem bankinn er í ríkiseigu og það sama gildir um launakjör framkvæmdastjóra dótturfélaga bankans. Það gildir hins vegar ekki um eignaumsýslufélögin Reginn, sem á fasteignir sem bankinn hefur tekið yfir og Vestia sem á hin ýmsu fyrirtæki, t.d Húsasmiðjuna og Vodafone. Landsbankinn hefur sett fimm dótturfélög sín í sérstakt eignarhaldsfélag sem heitir Eignarhaldsfélagið NBI ehf. Undir þessu félagi eru SP Fjármögnun, Vestia, Reginn, Horn, Landsvaki. Þegar eignaumsýslufélögin, Reginn og Vestia, voru færð frá Landsbankanum voru launakjör stjórnenda þessara fyrirtækja undanskilin hinni opinberu umsögn Kjararáðs og því er stjórnum þeirra í raun og veru gefið frítt spil hvað varðar launakjör starfsmanna. Kristján Kristjánsson, upplýsingafulltrúi Landsbakans, sagði í samtali við fréttastofu að launastefna þessara fyrirtækja væri hins vegar ekki frábrugðin launastefnu Landsbankans. Hann sagði að í þessu samhengi yrði til þess að líta að Samkeppnisyfirvöld hafi gert kröfu um að eignaumsýslufélögin yrðu færð frá bankanum, í því ljósi yrði að horfa til aukins sjálfstæðis þeirra. Bankinn ætti hins vegar sína fulltrúa í stjórnum þessara félaga og hefði því mikið um það segja hvernig stefna þeirra væri mörkuð meðal annars með tilliti til launa starfsmanna. Hann sagði jafnframt að yfir þessum félögum væru engir hálaunamenn, en ekki fékkst upp gefið hver kjör þeirra væru.
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Súperdósin snýr aftur Neytendur Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira