Marel dregur úr áhættu gagnvart íslensku krónunni 1. nóvember 2010 10:44
Marel hefur ákveðið að bjóða eigendum skuldabréfaflokkanna MARL 06 1 og MARL 09 1 að endurkaupa þessi skuldabréf. Um er að ræða einu eftirstandandi skuldir félagsins í íslenskum krónum. Samtals er heildarvirði þessara skuldabréfa rúmir sex milljarðar kr. Með þessu ætlar Marel að draga úr gengisáhættu gagnvart íslensku krónunni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Marel. Þar segir að í kjölfar útgáfu tilkynningarinnar mun Marel hf. gera eigendum skuldabréfa sem skráð eru í Kauphöllinni undir nafninu MARL 06 1 skilyrt tilboð um endurkaup á skuldabréfunum. Verðið sem tilboðið felur í sér er par verð þess dags sem kaupin fara fram. Skuldabréfin eru gefin út á Íslandi í febrúar 2006 með gjalddaga 8. Febrúar 2012. Endurkaup skuldabréfanna eru háð því að Marel útvegi viðunandi fjármögnun áður en gengið verður frá kaupunum. Tilboðið um endurkaup skuldabréfanna er hluti af áætlun Marel um að tryggja sér stöðuga og hagkvæma fjármögnun, sem mun auðvelda frekari samþættingu á starfsemi fyrirtækisins. Marel á um þessar mundir í formlegum viðræðum við takmarkaðan fjölda alþjóðlegra banka um fjármögnun fyrirtækisins. Marel hyggst einnig greiða upp að fullu skuldabréfaflokk MARL 09 1 - sem gefinn var út árið 2009 og er samkvæmt skilmálum bréfanna uppgreiðanlegur hvenær sem er fyrir gjalddaga í nóvember 2011 - háð því að viðunandi fjármögnun verði til staðar. Skuldabréfaflokkarnir tveir, MARL 06 1 og MARL 09 1, eru einu eftirstandi skuldir félagsins í íslenskum krónum. Endurkaup og uppgreiðsla á útistandandi skuldabréfum miðar að því að draga enn frekar úr gjaldeyrisáhættu gagnvart íslenskri krónu í efnahagsreikningi félagsins.
Mest lesið Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira