Nýir eigendur að Ölgerðinni 22. október 2010 12:58
Auður I fagfjárfestasjóður ásamt meðfjárfestum leggja til nýtt hlutafé og eignast 36% í Ölgerðinni. Í tilkynningu segir að samhliða muni Arion banki eignast 20% í félaginu og Andri Þór Guðmundsson, forstjóri og Októ Einarsson, stjórnarformaður ásamt fjórum framkvæmdastjórum Ölgerðarinnar eiga 44% í félaginu eftir endurskipulagningu. Þá segir að eftir gengishrun íslensku krónunnar hafi skuldsetning fyrirtækisins verið orðin veruleg byrði á annars góðum rekstri. „Þrátt fyrir að öll lán hafi verið í skilum var eigið fé neikvætt og hófu stjórnendur því viðræður við Arion banka um fjárhagslega endurskipulagningu og skuldbreytingu erlendra lána. Niðurstaða þessara viðræðna eru að samhliða inngreiðslu nýs hlutafjár munu skuldir félagsins lækka úr 9,5 milljörðum í rúma 7,2 milljarða króna og Arion banki eignast 20% hlut í félaginu." Arna Harðardóttir, framkvæmdastjóri AUÐAR I fagfjárfestasjóðs, segir að sjóðurinn sjái mikil verðmæti í Ölgerðinni sem skipar sterkan sess í hugum íslenskra neytenda eftir nærri 100 ára samfylgd. „Undanfarin ár hefur Ölgerðin náð miklum árangri og sterkri markaðsstöðu. Við sjáum tækifæri í áframhaldandi öflugri vöruþróun og markaðssókn á öllum sviðum starfseminnar. Það skiptir sköpum fyrir endurreisn íslensks efnahagslífs að fyrirtæki eins og Ölgerðin geti haldið áfram starfsemi af fullum krafti og þurfi ekki að eyða frekari tíma og orku í úrlausn þess mikla vanda sem hrunið olli." Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar segir ánægjulegt fyrir starfsmenn að óvissunni sé lokið og að nú sé horft björtum augum til framtíðar með öfluga nýja hluthafa um borð. „Hjá Ölgerðinni starfar samheldinn og duglegur hópur starfsfólks sem hefur staðið vaktina í gegnum erfiða tíma og mun gera það áfram."
Mest lesið Keypti hús við Sóleyjargötu af borginni á 310 milljónir Viðskipti innlent Fjórar týpur af yfirmönnum sem eru sjálfir að drukkna í vinnu Atvinnulíf Boða tæp 10% þjóðarinnar á hluthafafund Viðskipti innlent Tókst ekki að sýna fram á galla og situr uppi með körfuboltaskóna Neytendur Miðeind festir kaup á Snöru Viðskipti innlent Ráðin forstöðumaður hjá Eimskip Viðskipti innlent Minni þorskafli kosti fleiri milljarða Viðskipti innlent Verður nýr yfirlögfræðingur SFF Viðskipti innlent Löng röð myndaðist í Lágmúlanum á miðnætti Viðskipti innlent Topp fimm tólin í verkfærakistuna Samstarf Fleiri fréttir Boða tæp 10% þjóðarinnar á hluthafafund Miðeind festir kaup á Snöru Keypti hús við Sóleyjargötu af borginni á 310 milljónir Minni þorskafli kosti fleiri milljarða Verður nýr yfirlögfræðingur SFF Ráðin forstöðumaður hjá Eimskip Reon ræður inn hönnunarstjóra frá Spotify Kjarasamningar Play og ÍFF í höfn Greiddu 865 milljónir fyrir Herkastalann Löng röð myndaðist í Lágmúlanum á miðnætti Hrefna stýrir Attentus SFF hafna ásökunum bifreiðaeigenda „Klárlega“ breytingar í ytra umhverfi sem ÁTVR þurfi að laga sig að Vilborg Arna og Auðbjörg til liðs við FranklinCovey Þorgerður skipuð forstjóri ÁTVR „Ég veit ekki alveg hvað er að fara að gerast“ Ríkið greiddi 25 milljarða í laun Skor flytur: „Ansi þreytt“ að þurfa að reka fólk út klukkan tíu Meðallaun 758 þúsund á mánuði Saka hagfræðing SFF um að reyna að draga úr samkeppni í tryggingum Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Sveiflujöfnunarauki helst óbreyttur Ráðinn framkvæmdastjóri Janusar heilsueflingar Fyrsta sinni í mörg herrans ár neftóbakslaust í Leifsstöð Mun stýra Starfsþróunarsetri BHM Tilfallandi neftóbaksskortur veldur skjálfta 134 sagt upp í þremur hópuppsögnum Ingvi Steinn frá Arion til Defend Iceland Ferjuleiðir taka við rekstri ferjunnar Baldurs Nýr verslunarkjarni opnaður á Selfossi Sjá meira