Spáir meiri samdrætti þjóðarútgjalda en aðrir 15. júní 2010 11:52
Hagstofan gerir ráð fyrir að þjóðarútgjöld muni dragast saman um 3,3% á árinu sem er nokkuð meira en sá samdráttur sem bæði Seðlabankinn (SÍ) sem og ASÍ reikna með. Þannig hljóðar spá SÍ upp á 1,9% samdrátt í þjóðarútgjöldum en ASÍ upp á 1,5% samdrátt. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að þessi munur skýrist af því að Hagstofan reiknar með að einkaneyslan komi til með að dragast saman um 0,1% á árinu á meðan SÍ reiknar með vexti hennar upp á 1,1% og ASÍ með vexti upp á 0,9%. Jafnframt gerir Hagstofan ráð fyrir að samneyslan muni dragast saman um 3,8% milli ára á meðan SÍ reiknar með 3,0% samdrætti og ASÍ með 3,6% samdrætti. Að lokum reiknar Hagstofan með að fjármunamyndun muni dragast saman um 14,5% í ár en SÍ reiknar með 10,2% samdrætti og ASÍ með 11,9%. Af ofangreindri umfjöllun er því ljóst að spá Hagstofunnar er nokkuð svartsýnni en aðrar nýlegar spár innlendra aðila hvað þjóðarútgjöld varða en á móti er hún mun bjartsýnni hvað framlag utanríkisviðskipta varðar á árinu. Þannig gerir Hagstofan ráð fyrir að útflutningur vöru og þjónustu muni vaxa um 0,7% á árinu á meðan SÍ reiknar með 0,4% vexti og ASÍ með samdrætti upp á 3,1%. Auk þess reiknar Hagstofan með að innflutningur muni aukast um 0,6% í ár sem er nokkuð minna en sá 1% vöxtur sem ASÍ reiknar með og sá 2,5% vöxtur sem SÍ reiknar með. Líkt og aðrir aðilar sem nýlega hafa reitt fram þjóðhagsspár reiknar Hagstofan með því að atvinnuleysi verði áfram mikið og mun meira en Íslendingar eru vanir. Þannig spáir Hagstofan því að atvinnuleysi verði 9,1% í ár, 8,3% á næsta ári og að árið 2012 verði það komið niður í 6,3%. Er þetta nokkuð jákvæðari tónn en er í spám SÍ og ASÍ, en t.a.m. reiknar hagdeild ASÍ með að atvinnuleysi í ár verði 9,6% og fari svo niður í 9,2% á næsta ári og 8,0% árið 2012.
Mest lesið „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Viðskipti innlent Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira