Mál Dekabank gegn íslenska ríkinu fær dómsmeðferð 15. júní 2010 16:06
Hæstiréttur hefur fellt úr gildi úrskurð héraðsdóms og dæmt að þýski bankinn Dekabank eigi að fá efnismeðferð í héraðsdómi í máli sínu gegn íslenska ríkinu. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði úrskurðað að málinu bæri að vísa frá dómi. Um er að ræða skaðabótamál gegn íslenska ríkinu vegna mikils tap Dekabank á Glitni. Gerir Dekabank kröfu upp á 338 milljóna evra eða um 53 milljarða kr. Byggir Dekabank mál sitt á því sem hann segir fjölmörg mistök stjórnvalda, einkum Fjármálaeftirlitsins og Seðabankans fyrir hrun bankakerfisins haustið 2008. Héraðsdómari vísaði málinu frá dómi þar sem málshöfðun Dekabank í skaðabótamáli væri ótímabær, en grundvöllur skaðabótakröfu komi ekki til álita fyrr en að loknu uppgjöri á fjárkröfu Dekabank á hendur Glitni við slitameðferð bankans. Hæstiréttur taldi að Dekabank reisti kröfu sína á atvikum sem þegar væru að baki og að íslenska ríkið hafi ekki sýnt fram á að krafa bankans væri háð ókomnum atvikum. Eins og málið lægi fyrir væru ekki næg efni til að telja annmarka á reifun Dekabank á kröfugerð sinni slíka að ekki mætti bæta þar úr við meðferð þess eða að vörn verði svo áfátt vegna skorts á matsgerð þegar á fyrstu stigum að vísa bæri málinu frá héraðsdómi nú. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdómara að taka málið til efnismeðferðar. Í héraðsdómi voru reifuð rök Dekabank fyrir kröfu sinni. Þar segir m.a.: „Fyrir hrun bankanna hafi fjölmörg mistök verið gerð af hálfu stjórnvalda, einkum FME og Seðlabankans, við framfylgd löggjafar og framkvæmd eftirlits með bankakerfinu, svo og af hálfu ríkisstjórnar með því að grípa ekki til aðgerða á grundvelli fyrirliggjandi upplýsinga um hina alvarlegu stöðu bankanna. Á grundvelli almennra reglna skaðabótaréttar beri að líta á þessi mistök sem orsakir tjóns stefnanda. Þótt ein og sér hafi mistökin ekki verið fullnægjandi til þess að leiða til tjónsins, þá hafi þau verið ómissandi þáttur í atburðarásinni sem leiddu til hruns bankanna og þar með til tjóns stefnanda. Ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að eignast 75% hlut í Glitni gegn greiðslu 600 milljón evra hafi skort lagaheimild. Ákvörðunin hafi haft þær algerlega fyrirsjáanlegu afleiðingar að lánshæfismat Íslands og bankanna var lækkað og allar lánalínur lokuðust.Þessi tiltekna ákvörðun, þ.e. að eignast hlut í Glitni fremur en að veita þrautavaralán, líkt og óskað var eftir, kann að hafa verið sá einstaki atburður sem mestu réð varðandi fall bankanna. Ekki einungis hafi ákvörðunina skort lagastoð heldur var hún tekin í andstöðu við ráðleggingar flestra sérfræðinga."
Mest lesið Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Viðskipti innlent Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Sjá meira