Vísbendingar mun minni neyslusamdrátt en óttast var 15. júní 2010 08:44
Tölur um heildarveltu kreditkorta í maí gefa til kynna að neyslusamdrátturinn á þessu ári verði talsvert minni en óttast var í upphafi hrunsins haustið 2008.Fjallað er um málið í Markaðspunktum greiningar Arion banka. Þar segitr að vangaveltur um stefnu hagkerfisins þessa dagana snúa ekki síst að því hvort neysla landsmanna haldi áfram að dragast saman, eins og hún gerði á árunum 2008 og 2009. Árið 2010 byrjaði vel að þessu leyti því neysla landsmanna tók að vaxa, ef sá vöxtur heldur áfram mun neyslusamdrátturinn reynast talsvert minni en óttast var í upphafi hrunsins.„Ef svo fer verður hagvöxturinn meiri en ella enda er neysla stærsta sneiðin í hagvaxtarkökunni. Þessi niðurstaða hefði fjölmarga kosti í för með sér. Til dæmis yrði atvinnuleysi minna en annars og þörfin fyrir niðurskurð og skattahækkanir minni," segir í Markaðspunktunum.„Í apríl fór hinsvegar að glitta í óveðursský á lofti (á sama tíma og Eyjafjallajökull myndaði sitt öskuský) þar sem besti mælikvarðinn á neyslu þjóðarinnar, velta á debet- og kreditkortum, tók dýfu. Var það vísbending um að samdrátturinn muni halda áfram og að vöxturinn í upphafi árs hafi aðeins verið tilfallandi? Það eru óneitanlega ýmsir kraftar að verki sem geta dregið niður neysluna; atvinnuleysi er í hæstu hæðum, kaupmáttur heimila enn í lágmarki á sama tíma og mesti kúfurinn við útgreiðslu viðbótarlífeyrissparnaðar er genginn yfir. Boðaðar skattahækkanir á næsta ári hafa líklega einnig dregið væntingar landsmanna enn frekar niður."Greiningin segir að nýjustu neysluvísbendingar séu hinsvegar jákvæðar. Debet- og kreditkortavelta landsmanna jókst á ný í maí eftir að hafa tekið dýfu í mánuðinum þar á undan. Kortavelta jókst um 3,5% að raunvirði milli ára eftir 6% samdrátt í mánuðinum þar á undan. Í maímánuði mældist heildarkortavelta 56 milljarðar kr.Nýjustu tölur benda til þess að neyslan hafi verið nokkuð góð í maí, samanborið við litla dýfu í apríl. Enn er oft snemmt að segja til um stefnu einkaneyslunnar og áhugavert verður því að fylgjast með júnítölum um kortaveltu sem birtast í næsta mánuði.„Sem fyrr gerum við ráð fyrir að einkaneysla muni sýna bakslag á árinu enda er ljóst að skammtíma lausnir stjórnvalda (eins og frysting lána, útgreiðsla séreignasparnaðar) hafa haldið neyslustiginu uppi að einhverju leyti. Nú eru áhrif vegna þessara lausna að fjara út og því ekki ólíklegt að neyslustigið fari lítillega niður í kjölfarið," segir í Markaðspunktunum.Við þetta má bæta að samkvæmt hagtölum Seðlabankans var heildarvelta kreditkorta í maímánuði 25,2 milljarðar kr. samanborið við 22,1 milljarða kr. á sama tíma í fyrra og er þetta 14% aukning milli ára. Heildarvelta kreditkorta jókst um 3,3% í maí miðað við mánuðinn á undan. Debetkortavelta var í maí 31,1 milljarðar kr. sem var 16,3% aukning frá fyrri mánuði. Samanborið við sama tíma í fyrra jókst heildardebetkortaveltan í maí um 0,3%.
Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Erlent félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Fleiri fréttir Erlent félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Sjá meira