Viðskipti innlent

Breytt neysla

Fólk vegur upp tekjumissi með kaupum á notuðum hlutum, segir prófessor í frumkvöðlafræðum. Markaðurinn/GVA
Fólk vegur upp tekjumissi með kaupum á notuðum hlutum, segir prófessor í frumkvöðlafræðum. Markaðurinn/GVA
„Fram að núverandi kreppu gat fólk mætt launalækkun með aukinni vinnu. Nú er það ekki hægt. Það veldur því að fólk er inni­króað í samdrættinum,“ segir Örn D. Jónsson, prófessor í frumkvöðla- og nýsköpunarfræðum við Háskóla Íslands.

Hann hélt erindi í gær sem fjallaði um frumkvæði og nýsköpun sem lausn á samdrætti. Örn benti á að hagræðing nú gangi víða út á að banna yfirvinnu og spurði hvort ekki væri hægt að meta stöðuna fremur með hliðsjón af þörfum en framleiðslu. Hægt væri að þróa leiðir til að lækka útgjöld án þess að það dragi úr lífsgæðum.

Í fyrirlestrinum sagði Örn frá því að nærtækasta leiðin til að bæta almenn kjör væri að þróa hugvitssamlegar og ódýrar aðferðir til að þjóna þörfum fólks. Hann tók sem dæmi einfalda kúlu í stað þvottaefnis. Hún kostar um fimm þúsund krónur en dugar í mörg hundruð þvotta. Nú séu til fjölmargar slíkar leiðir og eru þær megináherslur í vöruþróun í nágrannalöndum okkar um þessar mundir. - jab





Fleiri fréttir

Sjá meira


×