Flugfélögin urðu af milljarði í eldgosinu 26. maí 2010 04:00
Áætlað tap íslenskra flugfélaga vegna eldgossins í Eyjafjallajökli er á bilinu einn til 1,3 milljarðar króna. Stafar það bæði af miklu tekjutapi og auknum kostnaði sem hlaust af tilfæringum félaganna innanlands og utan. Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, segir að tap félagsins sé á bilinu 700 milljónir til einn milljarður króna. Tap hvers dags á meðan gosið stóð sé í kringum 50 milljónir króna. Á bilinu 60 til 70 flug, sem á milli 15 og 20 þúsund farþegar áttu bókuð sæti í, féllu niður. Þrátt fyrir lokun Keflavíkurflugvallar tókst Icelandair að halda stórum hluta áætlunarflugs milli Evrópu og Bandaríkjanna með því að flytja miðstöð tengiflugs síns tímabundið til Glasgow. Frá Iceland Express fást þær upplýsingar að gosið hafi kostað félagið nálægt 200 milljónum. Aflýsa þurfti 50 áætlunarflugum fram og til baka sem snerti á bilinu 15 til 20 þúsund farþega. Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands, áætlar að um hundrað milljónir hafi tapast vegna áhrifa eldgossins á innanlandsflugið. Suma daga hafi allt flug legið niðri en aðra hafi þurft að breyta áætlunum talsvert. Birkir Hólm Guðnason er bjartsýnn á að sumarið verði, þrátt fyrir allt, ferðaþjónustunni hagfellt. Bindur hann miklar vonir við nýhafið markaðsátak ferðaþjónustunnar og stjórnvalda. Allt er það sett fram að því gefnu að gosinu í Eyjafjallajökli sé lokið. Hann segir að ekki verði hróflað við flugframboði Icelandair. Iceland Express ætlar einnig að halda sinni áætlun að því frátöldu að ekki verður flogið reglubundið milli Akureyrar og Lundúna eins og áformað var. - bþs
Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Fleiri fréttir TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Sjá meira