HB Grandi segir loðnuveiðar geta hafist í næsta mánuði 19. nóvember 2010 13:47
Vilhjálmur Vilhjálmsson, deildarstjóri uppsjávarsviðs HB Granda, segir að loðnuveiðar HB Granda gætu hafist strax í næsta mánuði. Sem kunnugt er af fréttum verður loðnukvótinn 200 þúsund tonn í vetur. Fjallað er um málið á vefsíðu HB Granda en þar fagnar Vilhjálmur því að kvóti hafi verið gefinn út og segir að góðar vonir séu bundnar við að hægt verði að auka frekar við kvótann eftir væntanlegar rannsóknir í byrjun næsta árs. ,, Það er léttir að þegar sé komin tillaga um byrjunarkvóta, þó lítill sé. Þá eru niðurstöðurnar varðandi ungloðnuna það jákvæðasta sem hefur komið út úr loðnurannsóknum mjög lengi og er það vissulega fagnaðarefni," segir Vilhjálmur. Á síðustu vertíð var kvóti skipa HB Granda hf. 20.505 tonn. Hlutur félagsins af 200.000 þúsund tonna tillögunni nú verður væntanlega um 27.000 tonn, að því gefnu að sjávarútvegsráðherra fari að ráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar. Hafa ber í huga að Íslendingar deila loðnukvótanum með Norðmönnum, Færeyingum og Grænlendingum en hluti þessara þjóða í heildarkvótanum er um 28%. En hvernig hyggst HB Grandi nýta loðnukvótann á vertíðinni? ,,Við reiknum með að veiða eitthvað af loðnu í desember og vonum að mæling Hafrannsóknarstofnunar í janúar muni gefa tilefni til viðbótarkvóta," segir Vilhjálmur en hann bendir á að þótt niðurstöður umræddra mælinga séu vissulega uppörvandi þá sé aflamagnið, sem Hafrannsóknastofnun leggur til nú, aðeins brot af því sem veitt var á sínum tíma. ,,Þess má geta að fyrstu vertíðina eftir að HB Grandi hf. varð til í sinni núverandi mynd eftir kaup á HB og samruna við Tanga og Svan RE ehf. fyrir rúmlega fimm árum var loðnukvóti félagsins 144 þúsund tonn," segir Vilhjálmur Vilhjálmsson.
Mest lesið Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Sjá meira