Viðskipti innlent

Hagkerfið finnur botn kreppunnar á næstu mánuðum

Reikna má með því að hagkerfið finni botn kreppunnar á næstu mánuðum og að við taki hægfara bati, að því er segir í nýrri hagspá greiningar Íslandsbanka. Greiningin gerir ráð fyrir 0,9% hagvexti á næsta ári og 2,9% hagvexti árið 2012.

Fjallað er um hagspánna í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að skilyrði fyrir vexti hafa skapast að nýju eftir mikla leiðréttingu í eigna, skulda, tekju og gjaldahlið þjóðarbúsins. Ólíklegt er að viðsnúningurinn verði hraður sökum margra kerfislægra vandamála sem enn eru til staðar. Má þar nefna skuldavanda fyrirtækja, heimila og hins opinbera, skort á virkum fjármálamarkaði og trausti. Afleiðingar fjármálakreppunnar munu því lita efnahagsþróunina talsvert fram yfir þann tímapunkt þegar botni kreppunnar er náð.

„Reiknum við með því að hagvöxtur mælist 0,9% á næsta ári, knúinn áfram af aukinni neyslu, fjárfestingu og útflutningi. Lágt raungengi og aukinn hagvöxtur á heimsvísu hjálpar útflutningnum á meðan aukin erlend fjárfesting hér á landi, vaxandi kaupmáttur og lægri vextir hvetja innlenda eftirspurn. Lítill vöxtur verður að öllum líkingum í öllum þessum liðum og viðsnúningurinn vart sýnilegur svo neinu nemur fyrr en á árinu 2012, en við spáum 2,9% hagvexti það ár og 3,3% hagvexti 2013," segir í Morgunkorninu.

Eftir að samdrátturinn í einkaneyslu sem staðið hafði yfir frá 2008 virtist ætla að taka enda um mitt þetta ár hefur viðvarandi óvissa um skuldastöðu heimilanna tafið viðsnúninginn a.m.k. tímabundið. Vaxandi kaupmáttur, lækkun vaxta, bætt staða vinnumarkaðarins auk hækkunar eignaverðs skapar skilyrði fyrir aukningu einkaneyslu þegar líða tekur á næsta ár.

„Viðbúið er að vöxturinn verði hægur og að hann byggist minna á skuldsettum vexti og eignaverðshækkunum en hefur verið raunin í mörgum öðrum uppsveiflum í íslensku efnahagslífi. Reiknum við með því að einkaneyslan vaxi um 2,5% á næsta ári, kaupmáttur launa um 0,1% og að atvinnuleysi lækki úr 8,1% á þessu ári niður í 7,5% á næsta ári. Einnig reiknum við með 0,8% raunverðshækkun íbúðarhúsnæðis," segir í Morgunkorninu.

Þá segir að fjárfestingarstigið í hagkerfinu sé afar lágt um þessar mundir en vel þekkt er að það sé lágt um hríð eftir að hagkerfi hafa orðið fyrir gjaldeyris- og bankakreppu. Mikil skuldsetning, hægur vöxtur innlendrar eftirspurnar, seinagangur í fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækja og heimila sem og höft á gjaldeyrismarkaði draga úr vaxtamöguleikum á þessu sviði efnahagslífsins á næstunni.

„Fjárfestingarstig sem er talsvert yfir núverandi stigi er nauðsynlegt til að halda hagvexti viðunandi litið til lengri tíma. Reiknum við með því að fjárfesting vaxi um 4,4% á næsta ári, aðallega vegna fjárfestinga í stóriðju og tengdri starfsemi. Þegar kemur fram á árið 2013 reiknum við hins vegar með hagstæðari skilyrðum og að fjárfesting taki öll við sér, þ.e. fjárfesting atvinnuveganna, heimilanna og hins opinbera," segir í Morgunkorninu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×