Verðbólgan tekjulind hjá Landsbanka og Íslandsbanka 27. maí 2010 08:21
Verðbólgan skilaði tekjum hjá bæði Íslandsbanka og Landsbanka á síðasta ári þar sem verðtryggðar eignir þessara banka voru hærri en verðtryggðar skuldir. Arion banki tapaði aftur á móti verðbólgunni á síðasta ári þ.e. verðtryggðar skuldir voru hærri en verðtryggðar eignir.Þetta kemur fram í umfjöllun greiningar Arion banka í Markaðspunktum sínum. Þar er fjallað um uppgjör Arion banka, Íslandsbanka og Landsbanka (NBI) fyrir árið 2009 sem voru nýlega birt en síðasta ár var einmitt fyrsta heila rekstrarár þessara nýju banka.Íslandsbanki skilaði hvað bestri afkomu á árinu 2009 af bönkunum þremur ef aðeins er litið á lokatölurnar. Þannig var hagnaður Íslandsbanka um 24 milljarðar kr. og arðsemi eiginfjár 30%. Hins vegar er efnahagsreikningur Landsbankans sá stærsti af bönkunum og nema eignir um 1.000 milljörðum kr. og er útibúanet bankans sömuleiðis stærst þegar litið er til fjölda útibúa.Í Markaðspunktum segir að nettó vaxtatekjur Íslandsbanka námu 32 milljörðum kr, Landsbankans um 28 milljörðum kr.og Arion Banka 12 milljörðum kr. Sé horft framhjá uppfærslu á eignum og skuldum í sundurliðun á nettó vaxtatekjum Landsbankans, lækka nettó vaxtatekjurnar um nærri helming, og væru þær því um 14,5 milljörðum kr í stað 28 milljarða kr. eins og kemur fram í rekstrarreikningnum.Rekstrartekjur Arion banka eru hæstar af bönkunum sem kann að koma á óvart ef horft er til nettó vaxta- og þóknanatekna allra bankanna. Þetta á sér þó eðlilegar skýringar en í tilfelli Arion banka hefur bankinn yfirtekið nokkur fyrirtæki tímabundið sem teljast til dótturfyrirtækja í uppgjörinu (á ekki við um Haga og Íslenska Aðalverktaka). Það er ekki þar með sagt að afkoma þessara félaga hafi skilað bankanum miklu en tekjur dótturfyrirtækja voru um 17,8 milljarða kr. en rekstrarkostnaður þeirra var um 18 milljarðar kr. og því um 200 milljóna kr. tap að ræða.Útlán voru um 98 milljörðum kr. hærri en innlán hjá Íslandsbanka (eða 15% af eignum bankans) og svipaða sögu má segja um Landsbankann þar sem útlánin voru 200 milljörðum kr. hærri (20% af eignum bankans). Hins vegar eru innlán um 210 milljörðum kr hærri en útlán hjá Arion banka, eða sem nemur um 30% af eignum.Þess má einnig geta að Arion banki er stærsti innlánabanki landsins með um 600 milljarða kr. í innlánum þar af 495 milljarða kr í innlánum frá viðskiptavinum. Til samanburðar eru innlán frá viðskiptavinum hjá Landsbankanum 453 milljarðar kr. og hjá Íslandsbanka 340 milljarðar kr.Ef litið er á innlán frá viðskiptavinum sem hlutfall af eignum, sést að Arion banki er að mestu fjármagnaður með innlánum eða um 65%. Þetta hlutfall er heldur lægra fyrir hina tvo bankana. Ef skuldir við fjármálafyrirtæki og Seðlabanka eru taldar til innlána ásamt innlánum viðskiptavina (heildarinnlán) er hlutfallið um 80% fyrir Arion banka.
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira