Vinnslustöðin greiðir út arð í evrum 1. júlí 2010 14:43 Starfsfólk Vinnslustöðvarinnar. Mynd úr safni.
Aðalfundur Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum samþykkti á aðalfundi að skrá hlutafé félagsins í evrum og að í kjölfarið yrði greiddur út 18% arður í evrum samkvæmt eyjafréttum.is. Á heimasíðu Eyjafrétta segir að á árinu 2008 hafi félagið nýtt sér heimild í lögum til að breyta reikningsskilum sínum úr íslenskum krónum í evrur. Stjórn og stjórnendur segja að reynslan sýni að sú ákvörðun hafi verið hárrétt, því að öðrum kosti hefði félagið hvorki haldið eigin fé sínu né getu til að greiða eigendum sínum arð. Eigið fé Vinnslustöðvarinnar er tæplega 30 milljónir evra og eiginfjárhlutfallið tæp 33% samkvæmt nýsamþykktum reikningum 2009. Ef sömu reikningar félagsins hefðu verið gerðir upp í íslenskum krónum væri eigið fé hins vegar neikvætt um 872 milljónir króna og eiginfjárhlutfallið væri neikvætt um 8,7%. Sigurgeir B. Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, tók á aðalfundinum einfalt dæmi til að sýna fram á hve litla þýðingu það hefði að tala um skuldir íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja í íslenskum krónum, sem reyndar væri sígilt og vinsælt umræðuefni álitsgjafa og skoðanahönnuða í fjölmiðlum. Vinnslustöðin skuldar 61 milljón evra og hefur ekki skuldað minna í evrum frá því árið 2003 en í íslenskum krónum eru skuldir félagsins nú tvöfalt hærri en þær voru 2003. Tekjur félagsins í evrum á síðastliðnu ári voru hins vegar 20 milljónum evra meiri en árið 2003. Síðan spurði Sigurgeir B. fundarmenn: „Nær allar tekjur félagsins eru í erlendum myntum og hvaða þýðingu hefur þá í raun að velta vöngum yfir því að skuldir þess í íslenskum krónum hafi tvöfaldast við hrun krónunnar árið 2008?" Hægt er að nálgast frétt Eyjafrétta hér.
Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Viðskipti innlent Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Viðskipti innlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Sjá meira