Hagstofan spáir 4% verðbólgu í lok ársins 15. júní 2010 11:14
Hagstofan spáir því að verðbólga verði 6,0% að meðaltali í ár en komin í um 4,0% í lok ársins. Spáð er áframhaldandi hjöðnun verðbólgu árið 2011 og að hún verði á verðbólgumarkmiði (2,5% innsk. blm.) að meðaltali árið 2012. Þetta kemur fram í þjóðhagsspá Hagstofunnar sem birt var í morgun. Þar segir að árið 2009 var verðbólga 12% að meðaltali en lækkaði hratt, úr 18,6% í janúar í 7,5% í desember. Verðbólgan á fyrstu mánuðum þessa árs var nokkuð hærri en væntingar gáfu til kynna. Í maí lækkaði tólf mánaða verðbólgan aftur og mældist 7,5%. Á þessu tímabili hafa kostnaðarhækkanir vegna falls krónunnar og verðlækkun húsnæðis haft mest áhrif. Gengi krónunnar féll um 25% milli 2008 og 2009. Síðastliðin misseri hefur veiking krónunnar einkum komið fram í hækkun á verði innfluttra vara en frá janúar 2009 til maí 2010 hækkaði verð á innfluttum vörum um tæplega 20%, en þar hafði hækkun á heimsmarkaðsverði olíu einnig áhrif. Lækkun húsnæðis hefur haldið aftur af verðbólgu sem sést á því að árið 2009 var verðbólga án húsnæðis 16,1% og í maí 2010 var samsvarandi ársbreyting 12,0%. Lækkunin endurspeglar verulegan samdrátt í viðskiptum á fasteignamarkaði og ljóst að húsnæðisverð hefur lækkað umtalsvert, hvort sem litið er til rauneða nafnvirðis. Gert er ráð fyrir á að verðbólga haldi áfram að minnka á þessu ári. Mikill slaki er í hagkerfinu og launaþrýstingur hefur verið með minnsta móti, þó ekki sé loku fyrir það skotið að laun hækki í útflutningsgreinum. Gengi krónunnar hefur styrkst nokkuð það sem af er ári og eru því horfur á að þáttur innfluttrar vöru í verðbólgu lækki þegar líður á árið.
Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Erlent félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Fleiri fréttir Erlent félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Sjá meira