Telur of snemmt að blása kreppuna af 3. september 2010 20:00 Bjarni Már Gylfason. Mynd/Anton Brink
Nýjar tölur um landsframleiðslu á öðrum ársfjórðungi þessa árs eru mikið áhyggjuefni, að mati Bjarna Más Gylfasonar hagfræðings Samtaka iðnaðarins. Þær gefa til kynna að hagkerfið sé enn í samdrætti og framleiðsla að minnka. Hann segir of snemmt að blása kreppuna af. „Fyrir utan samneysluna eru allir undirliðir landsframleiðslunnar að dragast saman og raunar er núna að mælast mesti samdráttur í einkaneyslu og landsframleiðslu milli ársfjórðunga síðan áfallið reið yfir seinni hluta árs 2008 eða ríflega 3%," segir Bjarní Már á vef Samtaka iðnaðarins. „Þetta er þvert á þau skilaboð sem stjórnmálamenn eru að senda okkur um að botninum sé náð og að betri tíð sé framundan. Vissulega væri óskandi að svo væri en hagtölur benda því miður til annars." Aðrir þættir horfa til betri vegar. Störfum fjölgaði í upphafi árs, atvinnuleysi hefur verið að minnka, verðbólga að lækka og gengið að styrkjast. Bjarni Már bendir hins vegar á að minnkandi verðbólga og lækkandi vextir sé samt skýrt merki um samdráttinn í hagkerfinu.Skammgóður vermir „Kannski erum við nú að súpa seyðið af skattahækkunum síðasta árs og þeim töfum sem orðið hafa á fyrirhuguðum stórframkvæmdum. Einkaneyslan í fyrra var líka óvenju há vegna mikils útstreymis fjármagns úr séreignalífeyrisjóðum og ríkissjóður fékk þar óvæntar skatttekjur," segir Bjarni Már og bætir við að það sé skammgóður vermir að halda áfram á þeirri braut. „Einnig er rétt að benda á að samdrátturinn í fyrra varð minni en ella vegna veikrar stöðu krónunnar og tilsvarandi aukningar í útflutningstekjum. Án fjárfestingar og uppbyggingar er ekki hægt að auka útflutning mikið meira."
Mest lesið Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Viðskipti innlent Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Viðskipti innlent Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Viðskipti innlent Fjárfestu í karllægum félögum og báðu síðan um fund með forstjóranum Atvinnulíf Íslendingar borgi 55 prósent meira fyrir matvöru Viðskipti innlent Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Viðskipti innlent Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Viðskipti innlent Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Viðskipti innlent Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Íslendingar borgi 55 prósent meira fyrir matvöru Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Sjá meira