Viðskipti innlent

Steinþór Pálsson ráðinn bankastjóri Landsbankans

Bankaráð Landsbankans (NBI hf.) hefur ráðið Steinþór Pálsson til að gegna störfum bankastjóra og tekur hann við af Ásmundi Stefánssyni.

Steinþór skrifaði undir ráðningarsamning við Gunnar Helga Hálfdanarson, formann bankaráðs bankans í dag. Hann mun hefja störf í bankanum 1. júní.

42 umsóknir bárust þegar starf bankastjóra var auglýst.

Gunnar Helgi Hálfdanarson lýsti ánægju með ráðninguna samkvæmt tilkynningu sem bankinn sendi frá sér.

,,Steinþór er reyndur stjórnandi, sem hefur þá kosti sem bankaráðið hefur leitað að. Stefnan var að ráða bankastjóra sem væri leiðtogi, öflugur rekstrarmaður með bankareynslu og gæti unnið vel með viðskiptavinum, bankaráði og starfsmönnum bankans. Bankaráðið telur gríðarlega mikilvægt að fyrir Landsbankanum fari maður sem getur leitt hann áfram af þeim krafti og því þori sem þarf til að koma bankanum þangað sem hann á heima, í efsta sæti úrvalsdeildarinnar," segir Gunnar.

Steinþór Pálsson hefur langa og farsæla reynslu af stjórnunarstörfum við rekstur bankastofnana og framleiðslufyrirtækja innanlands og erlendis og mikla reynslu af breytingastjórnun og stefnumótun.

Steinþór segist hlakka til að takast á við verkefnið og kvíði því ekki.

,,Ég geri mér fulla grein fyrir því að það er hart í ári í íslensku atvinnulífi og að starfsemi Landsbankans skiptir miklu um hvernig endurreisn þess gengur. Ég tel hins vegar að bankinn sé vel mannaður og að staða hans sé þannig að hann geti axlað þá ábyrgð sem honum er falin. Ég hlakka til að kynnast starfsfólki bankans og vinna með því að vexti og viðgangi hans."

Steinþór er kvæntur Áslaugu Guðjónsdóttur tölvunarfræðingi og eiga þau tvær dætur. Hann lauk prófi í viðskiptafræði frá HÍ 1985 og MBA name frá Edinborgarháskóla 1995.

Starfsferill:

1986-1989: Framkvæmdastjóri lánasviðs Verzlunarbanka Íslands

1990-2000: Starfsmaður Íslandsbanka, m.a. sem forstöðumaður lánadeildar, fjárfestingarlána útibúaþjónustu, áhættustýringar og fyrirtækjaþjónustu auk þess sem hann var virkur í stefnumótunarstarfi Íslandsbanka og samrunaferli forvera hans.

2001-2002: Fjármálastjóri- og rekstrarstjóri, Urður, Verðandi og Skuld

2002-2010: Framkvæmdastjóri Actavis á Möltu, framkvæmdastjóri Actavis í Bandaríkjunum og nú tæp 2 síðustu árin framkvæmdastjóri Actavis samstæðunnar á Íslandi á sviði stefnumótuna.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×