Breytingin á Bakkavör til skoðunar hjá FME 25. mars 2010 06:30 Þórður Friðjónsson
Fjármálaeftirlitið hefur gert athugasemdir við fyrirhugaða breytingu á eignarhaldi Bakkavarar og afskráningu félagsins úr Kauphöll, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Stjórn Bakkavarar hefur boðað til hluthafafundar á morgun að frumkvæði kröfuhafa. Fundurinn er liður í nauðasamningum, sem meirihluti kröfuhafa samþykkti í byrjun mánaðar. Gangi allt eftir á fundinum munu kröfuhafar eignast 27 prósenta hlut í Bakkavör og hlutur Bakkavararbræðra, þeirra Ágústs og Lýðs Guðmundssona, þurrkast út. Þeir eru nú skráðir fyrir 30,8 prósenta hlut í Bakkavör í gegnum félagið B Food Invest. Í kjölfarið verður Bakkavör breytt úr almenningshlutafélagi í einkahlutafélag og hlutabréf þess síðan tekin úr viðskiptum í Kauphöllinni. Bakkavör er eitt þeirra sex fyrirtækja sem mynda Úrvalsvísitölu Kauphallarinnar. Stjórn félagsins óskaði eftir afskráningu í ágúst í fyrra. Kauphallarreglur heimila ekki einkahlutafélögum að vera með skráð hlutabréf á markaði. Því verði fyrst að afskrá Bakkavör áður en hægt verði að breyta félaginu í einkahlutafélag. Lög um skráð hlutafélög á markað eru sérlög sem ganga framar almennum reglum laga um hlutafélög. Kauphöllin gagnrýndi breytinguna á mánudag. Gangi hún eftir bryti það í bága við lög og málið sent Fjármálaeftirlitinu. Þórður Friðjónsson sagði í samtali við Fréttablaðið á dögunum nokkur vafaatriði í fyrirhugaðri afskráningu Bakkavarar. Auk gagnrýni á eignarhaldsbreytingu félagsins virðist sem ekki sé gætt að hag minni hluthafa félagsins þar sem útlit sé fyrir að þeim bjóðist engar útgönguleiðir fyrir afskráningu, svo sem með beinni sölu á eignarhlutum sínum eða greiðslu í öðru formi. „Þetta finnst okkur ekki hafa á sér góðan blæ né til þess fallið að efla trúverðugleika á markaði," sagði hann. jonab@frettabladid.is
Mest lesið „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Sjá meira