Viðskipti innlent

Starfsmenn Stálskipa voru tekjuhæstir

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Það gefur greinilega vel af sér að vinna við útgerð. Mynd/ Vilhelm.
Það gefur greinilega vel af sér að vinna við útgerð. Mynd/ Vilhelm.
Meðallaun starfsmanna útgerðarfélagsins Stálskipa voru hæst allra fyrirtækja á Íslandi í fyrra. Eftir því sem fram kemur í nýju riti Frjálsrar verslunar, 300 stærstu, fengu starfsmenn fyrirtækisins að meðaltali 17,363 milljónir króna. Það þýðir að hver starfsmaður var með um 1,45 milljónir króna í laun á mánuði í fyrra.

Starfsmenn útgerðarfyrirtækisins Eskju voru með næst hæstu launin eða 16,565 milljónir króna yfir árið, eða 1,38 milljónir króna. Í þriðja sæti eru svo starfsmenn Farice sæstrengsins með 14,233 milljónir króna.

Um er að ræða meðallaun starfsmanna, en ekki er tekið fram hvernig launin dreifast milli starfsmanna fyrirtækisins.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×