Viðskipti innlent

Afkoma ríkisins nær 20 milljörðum betri en vænst var

Handbært fé frá rekstri ríkissjóðs var neikvætt um 73,6 milljörðum kr. en var neikvætt um 88,7 milljarða kr. á sama tímabili 2009. Þetta er mun betri niðurstaða en gert var ráð fyrir í áætlunum þar sem gert var ráð fyrir að handbært fé frá rekstri yrði neikvætt um tæpa 93 milljarða kr.

Tekjur reyndust um 28,7 milljarða kr. hærri en í fyrra á meðan að gjöldin jukust um 7,7 milljarða kr. milli ára.

Afkoma ríkissjóðs fyrstu níu mánuði ársins hefur verið birt á vefsíðu stjórnarráðsins.

Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-september 2010








Fleiri fréttir

Sjá meira


×