Viðskipti innlent

Kröfu Bjarka Diego hafnað - áfrýjar til Hæstaréttar

Valur Grettisson skrifar
Bjarki starfaði hjá Kaupþingi.
Bjarki starfaði hjá Kaupþingi.

Íslenska ríkið var sýknað af kröfu Bjarka H. Diego, fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá Kaupþingi, en hann höfðaði mál á hendur Ríkisskattstjóra vegna skattálagninga á söluréttarsamningum af hlutabréfum í Kaupþingi.

Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur um klukkan hálf fjögur í dag. Samningana gerði Bjarki þegar hann starfaði hjá Kaupþingi banka. Bjarki fullyrðir að samningar sem hann gerði um kaup á hlutabréfum í bankanum séu í grundvallaratriðum ólíkir kaupréttarsamningum.

Bjarki vísaði meðal annars til þess að stjórnendur bankans hefðu ætlast til þess að bréfin yrðu í hans eigu á meðan hann væri við störf hjá bankanum.

Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, bar vitni í málinu í gegnum síma frá Lúxemborg. Hreiðar tók undir orð Bjarka um að ekki hafi verið ætlast til þess að hann, eða aðrir starfsmenn Kaupþings sem gerðu svipaða samninga, myndu selja bréfin.

Bjarki sagði að næði úrskurður Ríkisskattstjóra um endurákvörðun á skatti upp á 100 milljónir króna fram að ganga, sem og ákvörðun slitastjórnar Kaupþings um riftun á niðurfellingu persónulegra ábyrgða, yrði hann gjaldþrota. Enginn maður myndi ráða við þessar skuldbindingar.

Í niðurstöðu Héraðsdóm Reykjavíkur segir að ekki verði fram hjá því litið að tilgangur fjármálagerninganna var sá að þeir virkuðu sem kaupauki fyrir Bjarka en jafnframt því að hann eignaðist hlutina skyldi hann tryggður fyrir hugsanlegri verðlækkun þeirra.

Þá lánaði Kaupþing honum allt andvirði bréfanna og áttu lánin að verða endurgreidd í lok samningstíma. Samkvæmt samningunum átti Bjarki val um það að liðnum 3 árum hvort hann ætti hlutina áfram eða seldi þá en í hvoru tilviki um sig gerðu samningarnir ráð fyrir því að Bjarki greiddi lán það sem hann hafði fengið til kaupanna.

Fólst í þessu að Bjarki var í aðstöðu til þess að afla sér tekna sem myndast kynnu við mismun verðs hlutanna er sölurétturinn félli úr gildi en áhætta hans vegna lækkunnar verðs var engin.

Lögmaður Bjarka sagði strax við dómsuppsögu í málinu að því yrði áfrýjað til Hæstaréttar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×