Stapi afskrifar 4 milljarða kröfu á Straum 18. apríl 2010 08:23 Það er mat stjórnenda sjóðsins, að svo mikil óvissa ríki um afdrif kröfunnar, að ekki er annað verjandi en að færa hana niður að fullu.
Lífeyrissjóðurinn Stapi hefur ákveðið að afskrifa 4 milljarða kr. kröfu sína á Straum. Eins og kunnugt er af fréttum gleymdu lögmenn sjóðsins að lýsa kröfunni í þrotabú Straums áður en kröfulýsingarfresturinn rann út. Fjallað er um málið á heimasíðu Stapa í kjölfar birtingar á ársreikingi sjóðsins fyrir árið í fyrra. Þar segir að árið 2009 var erfitt rekstrarár fyrir Stapa lífeyrissjóð. Afkoma Tryggingadeildar sjóðsins var slök annað árið í röð og er tryggingafræðileg staða deildarinnar erfið. Þrátt fyrir varfærið mat á eignum í árslok 2008 reyndist staðan vera mun verri en gert var ráð fyrir og hafði töluverð áhrif á afkomu ársins 2009. Þá varð sjóðurinn fyrir miklu áflalli um mitt sumar 2009 þegar í ljós kom að lögmannsstofa sem unnið hefur fyrir sjóðinn til margra ára, lýsti kröfum í þrotabú Straums Burðaráss Fjárfestingarbank hf. eftir að kröfulýsingarfrestur var útrunninn.Strax í kjölfarið var sett af stað mikil vinna til að reyna að koma kröfunni að og er enn í dag ekki útséð um hvort það tekst. Hins vegar er mat stjórnenda sjóðsins, að svo mikil óvissa ríki um afdrif kröfunnar, að ekki er annað verjandi en að færa hana niður að fullu. Þessi niðurfærsla hafði veruleg áhrif til hins verra á afkomu sjóðsins á árinu og gerir tryggingfræðilega stöðu sjóðins lakari um 1-2%. Nafnávöxtun Tryggingadeildar var jákvæð um 1,9% en raunávöxtun neikvæð um 6,2%. Söfn Séreignardeildar komu vel út á árinu og var raunávöxtun Safns I 10,9%, Safns II 11,5% og Safns III 9,2% á árinu."
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Súperdósin snýr aftur Neytendur Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira