ESB og Noregur ákveða makrílveiðar umfram ráðgjöf 15. desember 2010 09:47 „
Með því að taka til sín 90% þess makrílafla, sem Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) leggur til, hafa Norðmenn og Evrópusambandið ákveðið að makrílaflinn á næsta ári fari langt fram úr því sem veiðiráðgjöf hljóðar upp á," segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ. Fjallað er um málið á vefsíðu LÍÚ. Þar segir að Noregur og ESB hafa tilkynnt að Norðmenn ætli að taka sér 183 þúsund tonn af makríl á næsta ári en að ESB taki sér 401 þúsund tonn. Samtals eru þetta 584 þúsund tonn en ráðgjöf ICES hljóðar upp á 646 þúsund tonn. Friðrik segir þessa ákvörðun bera lítil merki ábyrgrar nálgunar. „Þeir ætla okkur, Færeyingum og Rússum samtals 62 þúsund tonn af rausn sinni. Í ár er kvóti okkar 130 þúsund tonn, Færeyinga 85 þúsund tonn og Rússa 45 þúsund tonn. Við höfum gert þeim skýra grein fyrir því að við ætlum að halda okkar hlut. Því leiðir þessi ákvörðun þeirra óhjákvæmilega til að veiðin fer vel fram úr veiðiráðgjöfinni sem er slæmt." Hann segir Íslendinga í fullum rétti til kveða á um veiðar á makríl innan íslensku efnahagslögsögunnar. „Við höfum sama rétt og Noregur og Evrópusambandsríkin til að veiða makríl. Veiðar okkar eru jafn lögmætar og þeirra þrátt fyrir eilífar ásakanir um annað. Það er hins vegar á ábyrgð allra hlutaðeigandi aðila að komast að samkomulagi um heildarstjórn makrílveiðanna. Það hefur því miður ekki tekist enda eru hugmyndir Norðmanna og ESB um að við veiðum einungis 3,1% heildaraflans eða um 20 þúsund tonn algjörlega óraunhæfar," segir Friðrik.
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fleiri fréttir Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Sjá meira