Endurskipulagningu Sparisjóðs Bolungarvíkur er lokið 27. maí 2010 10:26 Horfur fyrir árið 2010 eru ágætar og við frágang þeirrar fjárhagslegu endurskipulagningar, sem nú bíður samþykkis ESA og fundar stofnfjáreigenda, á rekstrargrundvöllur sparisjóðsins að vera tryggur.
Sparisjóður Bolungarvíkur tilkynnir að samningum vegna fjárhagslegrar endurskipulagningar sparisjóðsins er nú lokið með samþykki allra kröfuhafa sparisjóðsins. Tap sjóðsins í fyrra nemur tæpum 2,3 milljörðum kr. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar. Þar segir að endanlegur frágangur bíður samþykkis eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) en erindið var sent til umsagnar ESA í apríl síðastliðinn. Fundur stofnfjáreigenda er boðaður þann 10. Júní næstkomandi þar sem farið verður yfir atriði fjárhagslegrar endurskipulagningar sjóðsins og óskað samþykkis stofnfjáreigenda. Í tengslum við fjárhagslega endurskipulagningu sparisjóðsins verða verðbréf sparisjóðsins afskráð úr Kauphöll, en allir eigendur skuldabréfa sem gefin hafa verið út af sparisjóðnum hafa samþykkt afskráningu fyrir sitt leyti. Samhliða boðun fundar stofnfjáreigenda hefur stjórn Sparisjóðs Bolungarvíkur samþykkt ársreikning fyrir árið 2009. Samkvæmt honum var tap á rekstri sjóðsins 2.260 milljónir og eigið fé var neikvætt en að teknu tilliti til fjárhagslegrar endurskipulagningar er tapið 202 milljónir og eigið fé 19,22%. Jákvæð áhrif fjárhagslegrar endurskipulagningar sjóðsins sem miðast við 31.12.2009 koma ekki fram í ársreikningi þar sem dráttur á afgreiðslu málsins var of mikill til að hægt væri að taka tillit til þess í ársreikningi. Meðal niðurstaðna í ársreiknings Sparisjóðs Bolungarvíkur fyrir árið 2009 er að hreinar rekstrartekjur voru neikvæðar um 103 milljón króna. Rekstrarkostnaður lækkar um 22,6%, þar af lækkar launakostnaður um 12,6% og annar rekstrarkostnaður lækkar um 29,3%. Virðisrýrnun eigna nam 2.226 milljónum króna samanborið við 667 milljónir árið 2008. Þessi aukning er að mestu leyti tilkomin vegna virðisrýrnuna útlána sparisjóðsins í erlendum myntum. Heildareignir námu 6.846 milljónum króna í árslok 2009 og hafa dregist saman um 37,5% á árinu. Útlán til viðskiptamanna námu 3.746 milljónum króna í árslok 2009. Innlán námu 3.758 milljónum króna í lok ársins 2009. Horfur fyrir árið 2010 eru ágætar og við frágang þeirrar fjárhagslegu endurskipulagningar, sem nú bíður samþykkis ESA og fundar stofnfjáreigenda, á rekstrargrundvöllur sparisjóðsins að vera tryggur. Getur sparisjóðurinn þá tekið á ný stöðu sína sem bakhjarl í heimabyggð og lagt sín lóð á vogaskálarnar við endurreisn íslensks samfélags, að því er segir í tilkynningunni.
Mest lesið Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Atvinnulíf Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Jóhann Ingi til Securitas Viðskipti innlent Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Viðskipti innlent Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Viðskipti innlent Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Viðskipti innlent Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Sjá meira