Lyfjakostnaður ríkisins lækkaði um hátt í þrjá milljarða 26. október 2010 15:13
Breytingar sem gerðar hafa verið á greiðsluþátttöku ríkisins í lyfjakostnaði og fleiri aðgerðir hafa sparað þjóðarbúinu hátt á þriðja milljarð króna á ársgrundvelli. Þetta kemur fram á vefsíðu stjórnaráðsins. Þar segir að áhrif breytinganna eru tvíþættar. Notkun hagkvæmari lyfja hefur aukist og verð á mörgum lyfjum hefur lækkað. Nemur lækkunin allt að 60-70% á sumum lyfjum. Tekist hefur að beina lyfjanotkun í ódýrustu lyfin í mörgum stórum lyfjaflokkum, þ.e. blóðfitulyf, magalyf, blóðþrýstingslyf, astmalyf, beinþéttnilyf og þunglyndislyf. Fyrstu breytingarnar í þessu skyni voru gerðar í mars á síðasta ári. Sett var reglugerð sem takmarkaði almenna greiðsluþátttöku sjúkratrygginga við ódýrustu lyfin í tveimur stórum lyfjaflokkum og síðar bættust fleiri lyfjaflokkar við. Með þessu móti er gert ráð fyrir því að læknar vísi fremur á hagkvæmustu lyfin fyrir sjúklinga sína þegar um er að ræða sömu verkan þeirra og dýrari lyfja. Ef meðferð með þessum lyfjum er talin ófullnægjandi eða ef aukaverkanir koma fram við notkun þeirra getur læknir sótt um lyfjaskírteini sem tryggir sjúklingnum niðurgreiðslu vegna dýrara lyfs sem honum er nauðsynlegt. Samhliða umræddum breytingum sem gerðar voru í mars 2009 var meðal annars ráðist í aðgerðir til að lækka lyfjakostnað hjá börnum og fólki án atvinnu. Greiðsluþátttaka þeirra er nú hin sama og hjá elli- og örorkulífeyrisþegum. Upphaflega var reiknað með að sparnaður Sjúkratrygginga Íslands vegna breytinga á greiðsluþátttöku í einstökum lyfjaflokkum yrði tæplega 1,4 milljarðar króna á ársgrundvelli. Sparnaðurinn er hins vegar mun meiri, eða um 2 milljarðar króna. Af einstökum lyfjaflokkum er sparnaðurinn mestur vegna þunglyndislyfja, um 410 milljónir króna á ársgrundvelli. Ekki er vitað til þess að aukin notkun ódýrari lyfja hafi leitt til neinna heilsufarsvandamála hjá sjúklingum.
Mest lesið Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Framleiðendur verða að vera á tánum Viðskipti innlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira