Viðskipti innlent

Starfandi fólki fækkaði um 1.300 á þriðja ársfjórðungi

Fjöldi starfandi á þriðja ársfjórðungi 2010 var 170.200 manns og fækkaði um 1.300 frá sama tíma ári áður. Á vinnumarkaði voru alls 181.900 manns sem jafngildir 81,4% atvinnuþátttöku. Atvinnuþátttaka karla var 84,1% og kvenna 78,6%.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að til þeirra sem eru á vinnumarkaði teljast bæði þeir sem eru starfandi og atvinnulausir. Fólk telst vera starfandi ef það hefur unnið eina klukkustund eða meira í viðmiðunarviku könnunar eða verið fjarverandi frá starfi sem það gegnir að öllu jöfnu.

Á þriðja ársfjórðungi 2009 voru alls 182.500 á vinnumarkaði og atvinnuþátttaka mældist þá 82,1%. Atvinnuþátttaka karla var 85,8% og kvenna 78,2%.

Á þriðja ársfjórðungi 2010 var meðalfjöldi vinnustunda 40,4 klst. hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 44,2 klst. hjá körlum en 36 klst. hjá konum. Meðalfjöldi vinnustunda hjá þeim sem voru í fullu starfi var 45,5 klst. en 23,8 klst. hjá þeim sem voru í hlutastarfi.

Á þriðja ársfjórðungi 2009 var meðalfjöldi vinnustunda 40,9 klst., 45 klst. hjá körlum en 35,9 klst. hjá konum. Þeir sem voru í fullu starfi unnu 45,3 klst. að jafnaði en þeir sem voru í hlutastarfi unnu að jafnaði 23,9 klst.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×