Þarf að ákveða framtíð Byggðarstofnunar 22. desember 2010 12:55 Ríkisendurskoðun.
Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram að stofnunin telur að samvinna Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Byggðastofnunar og byggða-áætlunar, sé ónóg og verkaskipting milli þeirra óljós. Þá telur Ríkisendurskoðun þarft að ákveða framtíð Byggðarstofnunnar, jafnvel dreifa verkefnum hennar annað. Einnig torveldi ófullnægjandi skráning fjárhagsupplýsinga yfirsýn um fjárveitingar á þessu sviði og mat á árangri. Að mati Ríkisendurskoðunar þarf að endurskoða kerfið frá grunni og einfalda það. Þá þarf ráðuneytið að efla eftirlit sitt með aðilum innan þess og greina betur en hingað til kostnað, ávinning og árangur verkefna. Árlega ver ríkið umtalsverðu fé til að styðja við þróun atvinnulífs og byggðar í landinu. Rúmur milljarður króna rennur til stofnana og verkefna á vegum iðnaðarráðuneytisins: Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Byggðastofnunar og byggða-áætlunar. Byggðaáætlun á að veita yfirlit um áherslur stjórnvalda og forgangsröðun aðgerða á sviði byggðaþróunar. Ríkisendurskoðun telur að áætlunin hafi ekki reynst það stjórntæki sem henni er ætlað að vera þar sem í hana vanti áætlun um kostnað, mælanleg markmið og mælikvarða á árangur. Stofnunin leggur til að stefnumótun á sviði atvinnu- og byggðaþróunar verði endurskoðuð til að bæta úr þessum ágöllum. Að hennar mati eru áform forsætisráðuneytisins um svokallaða 20/20 Sóknaráætlun fyrir Ísland jákvætt skref í þessa átt. Í skýrslunni kemur fram að á síðustu árum hafi iðnaðarráðuneytið eflt Nýsköpunarmiðstöð en dregið úr vægi Byggðastofnunar. Ríkisendurskoðun telur að stjórnvöld þurfi að ákveða framtíðarhlutverk Byggðastofnunar á þessu sviði. Meðal annars þurfi að taka afstöðu til þess hvort flytja eigi hluta af verkefnum hennar til Nýsköpunarmiðstöðvar og Hagstofu Íslands. Fleiri ráðuneyti en iðnaðarráðuneytið styðja við atvinnu- og byggðaþróun, m.a. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið. Að mati Ríkisendurskoðunar skapa áform um stofnun atvinnuvegaráðuneytis tækifæri til að efla stuðning ríkisins við atvinnu- og byggðaþróun. Skýr ábyrgð eins ráðuneytis á málaflokknum muni stuðla að aukinni samhæfingu og betri nýtingu fjármuna.
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Sjá meira