Viðskipti innlent

Yfir nótt í haldi og leysti frá skjóðunni

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Jón Þorsteinn Jónsson, fyrrverandi stjórnarformaður Byrs sparisjóðs er orðinn lykilvitni bankahrunssaksóknara í Exeter málinu. Hann sýndi mikinn samstarfsvilja eftir að hafa gist fangaklefa í eina nótt meðan á yfirheyrslum stóð. Margeir Pétursson, stjórnarformaður MP banka, hefur einnig verið yfirheyrður í tengslum við rannsóknina.

Jón Þorsteinn Jónsson, fyrrverandi stjórnarformaður Byr, hefur stöðu sakbornings í rannsókn embættis sérstaks saksóknara á Exeter Holding, en Jón Þorsteinn var sem kunnugt er úrskurðaður í farbann vegna rannsóknarinnar. Ekki var krafist framlengingar á farbanninu þar sem Jón Þorsteinn mun hafa við yfirheyrslur upplýst um sinn þátt í málinu.

Samkvæmt heimildum fréttastofu mun hann hafa sýnt mikla samstarfsfýsi og veitt embætti saksóknara mikilvægar upplýsingar sem reyndust embættinu gagnlegar við rannsóknina. Yfirheyrslurnar munu hafa átt sér stað á tveimur dögum, en innan sólarhrings. Mun Jón hafa gist yfir nótt í fangaklefa, en lögregla getur haldið mönnum í allt að sólarhring án dómsúrskurðar.

Rannsókninni miðar vel, en Margeir Pétursson, eigandi MP banka, hefur verið yfirheyrðurí tengslum við rannsóknina og fengið réttarstöðu vitnis, samkæmt heimildum fréttastofu. Áður hafði Styrmir Þór Bragason, fyrrverandi forstjóri MP banka, verið yfirheyrður.

Embætti sérstaks saksóknara hefur undanfarnar vikur sett mikinn þunga í rannsókn á máli vegna láns upp á 1,4 milljarða króna sem stjórn Byrs veitti Exeter Holding í tveimur hlutum haustið 2008 eftir bankahrunið til að kaupa stofnfjárbréf á yfirverði af MP banka og tveimur stjórnarmönnum í Byr. Á þeim tíma var markaður með stofnfjárbréf lokaður og verð bréfanna hafði fallið. Bréf sem MP banki seldi á yfirverði til Exeter Holding hafði hann eignast eftir að hafa gengið að veðum félags sem var í eigu sparisjóðsstjóra Byrs og nokkurra stjórnenda sparisjóðsins. Með láninu sem Exeter Holding fékk var tjón MP banka takmarkað og lenti því á sparisjóðnum sjálfum, sem er í eigu hundruð stofnfjáreigenda.









Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×