Viðskipti innlent

Stærstir í rekstrarþjónustu og vélbúnaðarsölu

Pétur Gunnarsson skrifar
Gestur G. Gestsson, forstjóri Skýrr, segir fyrirtækið hafa alls 470 starfsmenn eftir sameiningu við EJS.
Gestur G. Gestsson, forstjóri Skýrr, segir fyrirtækið hafa alls 470 starfsmenn eftir sameiningu við EJS.
Við sameingu EJS og rekstrarlausna Skýrr eru starfsmenn fyrirtækisins 470 talsins og áætluð velta ársins 2010 er 8,5 milljarðar króna, segir Gestur G. Gestsson, forstjóri Skýrr.

„Við erum að renna saman tveimur fyrirtækjum í rekstrarþjónustu og vélbúnaðarsölu og búa til öflugasta fyrirtæki af þessu tagi hérlendis,“ segir hann. Ekkert í rekstri eða umhverfi EJS og Skýrr hafi rekið á eftir sameiningunni.

„Þetta er ekki gert í hagræðingarskyni,“ segir Gestur. „Bæði fyrirtækin hafa staðið sig mjög vel og aðlagað sig breyttum efnahagsaðstæðum af miklum myndarskap.“

Fyrirtækin eru bæði í eigu Teymis og Gestur segir að þegar skoðað hafi verið hvað hægt væri að gera betur hafi lykilstjórnendur beggja vegna borðsins komist að þeirri niðurstöðu að sameining væri besta niðurstaðan.

Af um 470 starfsmönnum eru nú um 190 starfandi hjá EJS og mynda þar öflugustu einingu landsins í þjónustu og sölu á rekstrarlausnum og vélbúnaði, að sögn Gests. Eyjólfur Magnús Kristinsson verður framkvæmdastjóri EJS. Hann stýrði áður rekstrarlausnum Skýrr. Sameiningin hefur ekki áhrif á þjónustu við þær þúsundir viðskiptavina að öðru leyti en því að „lausnaúrval og þjónustuþættir Skýrr og EJS breikka og dýpka við sameininguna“, segir Gestur

Um 10% af ársveltu fyrirtækisins eru nú fengin frá erlendum verkefnum. Gestur segir að eftir hrun gefi slík verkefni mjög vel af sér. Sameiningin þýði að fyrirtækið hafi náð hentugri stærð til þess að leita í auknum mæli eftir erlendum verkefnum. - pg





Fleiri fréttir

Sjá meira


×