Landsbankinn: Iðnfyrirtækið Límtré Vírnet til sölu 29. september 2010 09:40
Hömlur ehf., dótturfélag Landsbankans (NBI hf.) hefur falið Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans að annast sölu á öllu hlutafé í iðnfyrirtækinu Límtré Vírnet ehf. Þetta kemur fram á vefsíðu bankans. Þar asegir að starfseiningar Límtrés Vírnets, Vírnet í Borgarbyggð, Límtré á Flúðum og Yleiningar í Reykholti, voru hluti af samstæðu BM Vallár hf. sem tekin var til gjaldþrotaskipta í maí 2010. Nýstofnað rekstrarfélag í eigu Landsbankans keypti starfseiningar Límtrés Vírnets af þrotabúi BM Vallár hf. og lýsti því jafnframt yfir að Landsbankinn hygðist selja reksturinn innan 6 mánaða. Límtré Vírnet ehf. er öflugt fyrirtæki í framleiðslu og þjónustu fyrir innlendan byggingariðnað og hefur einnig selt hluta af framleiðsluvörum sínum á Færeyjamarkaði. Það byggir á rekstri gamalgróinna fyrirtækja, Vírneti sem var stofnað 1956 og þjónað hefur íslenskum byggingamarkaði óslitið frá þeim tíma og Límtré sem stofnað var 1982. Aðalstöðvar Límtrés Vírnets ehf. eru í Borgarnesi og þar eru framleiddar klæðningar, áfellur og saumur, auk þess sem þar er blikksmiðja, járnsmiðja og rafmagnsverkstæði. Á Flúðum er límtrésverksmiðja félagsins, í Reykholti er yleiningaframleiðsla en söluskrifstofa og lager eru í Kópavogi auk hluta yfirstjórnar og skrifstofuhalds. Söluferlið hófst 29. september 2010 og er opið öllum áhugasömum fjárfestum, sem sýnt geta fram á fjárfestingargetu umfram 250 milljónir króna. Þeim fjárfestum sem óska eftir að taka þátt ber að fylla út trúnaðaryfirlýsingu og eyðublað fyrir fjárfesta, leggja fram fullnægjandi staðfestingu á áðurnefndri fjárfestingargetu og sýna fram á viðeigandi þekkingu og reynslu af fjárfestingum og rekstri. Unnt er að nálgast kynningarblað, trúnaðaryfirlýsingu og eyðublað fyrir fjárfesta á heimasíðu Landsbankans, landsbankinn.is.
Mest lesið Vodafone, Stöð 2, Stöð 2+ og Stöð 2 Sport sameinast undir merki Sýnar Viðskipti innlent SVEIT þarf að greiða milljón á dag þar til gögn eru afhent Viðskipti innlent Starbucks frestar opnun fram í lok sumars Viðskipti innlent Mjög mikilvægt að eiga besta vin í vinnunni Atvinnulíf SVEIT kærir dagsektir Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Íris nýr sviðsstjóri hjá VSB verkfræðistofu Viðskipti innlent „Afi var alltaf með Malt í gleri og Prince Póló á skrifstofunni“ Atvinnulíf Hlutabréf Play ruku upp við opnun markaða Viðskipti innlent Steinkast og rispur? Ekki lengur vandamál með lakkvarnarfilmu frá Bónsvítunni Samstarf Bílastæðafyrirtæki fá á baukinn Neytendur Fleiri fréttir Íris nýr sviðsstjóri hjá VSB verkfræðistofu SVEIT kærir dagsektir Samkeppniseftirlitsins Vodafone, Stöð 2, Stöð 2+ og Stöð 2 Sport sameinast undir merki Sýnar Starbucks frestar opnun fram í lok sumars SVEIT þarf að greiða milljón á dag þar til gögn eru afhent Embla Medical hlaut útflutningsverðlaun forsetans og Ragnar Kjartans heiðraður Aukinn samdráttur á flugi til Íslands með breyttu Play Skattur á atvinnuhúsnæði hækkað um helming á áratug Tekur við fyrirtækjaráðgjöf Arion banka Hlutabréf Play ruku upp við opnun markaða „Erum bara að hætta þeirri starfsemi sem hefur gengið illa“ Áttatíu milljóna gjaldþrot Heimabakarís á Húsavík Vilja taka yfir Play Boða komu HBO Max til landsins á ný Pála ráðin kynningarfulltrúi BHM Bjarki og Axel Valdemar nýir forstöðumenn hjá atNorth Umsóknir í HA aldrei verið fleiri Keyptu Brauðhúsið til að fara ekki á hausinn 118 ára sögu Hans Petersen að ljúka Boða tæp 10% þjóðarinnar á hluthafafund Miðeind festir kaup á Snöru Keypti hús við Sóleyjargötu af borginni á 310 milljónir Minni þorskafli kosti fleiri milljarða Verður nýr yfirlögfræðingur SFF Ráðin forstöðumaður hjá Eimskip Reon ræður inn hönnunarstjóra frá Spotify Kjarasamningar Play og ÍFF í höfn Greiddu 865 milljónir fyrir Herkastalann Löng röð myndaðist í Lágmúlanum á miðnætti Hrefna stýrir Attentus Sjá meira