Ríkisendurskoðun gagnrýnir verklag Alþingis 26. október 2010 14:32
Ríkisendurskoðun hefur sent frá sér sjálfstæða ábendingu þar sem skrifstofa Alþingis er hvött til að endurskoða verklag sitt við verðfyrirspurnir og útboð. Fjallað er um málið á vefsíðu Ríkisendurskoðunnar. Þar segir að í nóvember á þessu ári verður þing Norðurlandaráðs haldið í Reykjavík en Alþingi sér um framkvæmd þess. Í lok síðasta árs óskaði skrifstofa Alþingis eftir tilboðum í tækniþjónustu á þinginu frá tveimur fyrirtækjum, Exton ehf. og Sense ehf. Ákveðið var að ganga til samninga við síðarnefnda fyrirtækið sem bauð umtalsvert lægra verð. Hitt fyrirtækið, Exton ehf., taldi að bjóða hefði átt verkefnið út samkvæmt lögum um opinber innkaup og vakti athygli Ríkisendurskoðunar á málinu. Niðurstaða Ríkisendurskoðunar er sú að bjóða hefði átt þjónustuna út enda fjárhagslegt umfang hennar augljóslega yfir mörkum útboðsskyldu. Samkvæmt lögum um opinber innkaup ber að bjóða út kaup á þjónustu ef verðmæti hennar er 12,4 milljónir króna eða meira. Tilboð Sense ehf. hljóðaði upp á 19,8 milljónir króna. Skrifstofa Alþingis telur að ekki hafi þurft að bjóða út þjónustuna þar sem Norðurlandaráð greiðir meirihluta kostnaðar við hana. Á móti bendir Ríkisendurskoðun á að bæði íslenska ríkið og Norðurlandaráð þurfa að hlíta sömu reglum um opinber innkaup, auk þess sem skrifstofa Alþingis er greiðandi reikninga vegna þjónustunnar. Vegna þessa máls telur Ríkisendurskoðun að skrifstofa Alþingis þurfi að taka verklag við útboð og verðfyrirspurnir til endurskoðunar.
Mest lesið Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Framleiðendur verða að vera á tánum Viðskipti innlent Forstjóri McDonald's hættir vegna sambands við samstarfsmann Viðskipti erlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira