Fleiri ferðast vegna hagstæðara gengis Jón Hákon Halldórsson skrifar 27. desember 2010 12:16 Fleiri ferðast vegna hagstæðara gengis.
Mun fleiri Íslendingar hafa verið á faraldsfæti á árinu samanborið við í fyrra. Ástæðan er sú að kaupmáttur Íslendinga hefur aukist á erlendri grundu vegna styrkingar krónunnar. Í Morgunkorni Íslandsbanka segir að gengi krónunnar hafi styrkst þó nokkuð gagnvart flestum öðrum myntum á árinu. Gengisvísitala krónunnar, sem vegur saman verð gjaldmiðla helstu viðskiptaþjóða Íslands gagnvart krónunni, hefur því lækkað þó nokkuð á árinu. Þannig hafi gildi gengisvísitölunnar staðið í lok síðasta árs í tæpum 233 stigum en nú standi hún í 208 stigum og jafngildi þetta styrkingu upp á 12%. Greining Íslandsbanka bendir á að kaupmáttur hafi aukist mismikið eftir því hvaða ríki er miðað við, og í sumum tilvikum hefur kaupmáttur jafnvel rýrnað. Þetta eigi til dæmis við ef Íslendingur ætlar að ferðast Ástralíu en þá þarf hann að reiða fram rúmum 5 krónum meira fyrir Ástralíudalinn (jafngildi 4% hækkunar) en um síðustu áramót. Svipaða sögu er að segja um ef áfangastaðurinn er annað hvort Japan eða Taíland. Þessu er þó öfugt farið í mun fleiri tilvikum, auk þess sem breytingin er þá að öllu jöfnu í ýktari mynd. Mest hefur gengi krónunnar styrkst gagnvart ungversku forintunni, og ætli Íslendingur að ferðast til Ungverjalands þarf hann nú að reiða fram um fimmtungi færri krónur fyrir forintuna en um síðustu áramót. Svipaða sögu er að segja ef ferðinni er heitið til Króatíu, og hefur krónan styrkst um 19% gagnvart hinni króatísku kúnu frá síðustu áramótum.
Mest lesið Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Fleiri fréttir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Sjá meira