Tap íslenskra fyrirtækja gríðarlegt Guðný Helga Herbertsdóttir. skrifar 24. maí 2010 18:32
Tap íslenskra fyrirtækja nam rúmum níu þúsund og sexhundruð milljörðum króna á árinu 2008 og hefur eigið fé þeirra nánast gufað upp. Þetta leiðir til minni skatttekna en útlit er fyrir að tekjuskattsstofninn hafi rýrnað um tæpan fjórðung á milli ára. Í Tíund, fréttablaði Ríkisskattstjóra, er úttekt á stöðu íslenskra fyrirtækja útfrá skattframtölum ársins 2009. Það er ekki ofsögum sagt að skattframtöl ársins 2009, vegna rekstrarársins 2008, sé vitnisburður um þær breytingar sem urðu á íslensku efnahagslífi eftir bankahrunið. Í fyrsta skipti voru rekstrartekjur lægri en rekstrargjöld. Rekstrartekjur hafa rúmlega fjórfaldast frá árinu 2000 á meðan rekstrargjöld hafa nær ellefufaldast. Tap íslenskra fyrirtækja, eftir að tekið hefur verið tillit til fjármagnsliða nam rúmum 9600 milljörðum króna. Til samanburðar má geta þess að gjöld ríkisins voru tæpar 688 milljarðar á sama tíma. Þetta þýðir að það skilar sér minna í ríkisskassann en áður. Útlit er fyrir að tekjuskattsstofn hafi rýrnað um tæpan fjórðung á milli ára, eða 39 milljarða króna. Eignir fyrirtækja rýrnuðu í fyrsta skipti milli ára og skuldir hafa nær átjánfaldast frá árinu 2000. Hækkun lána hefur svo leitt til þess að eigið fé fyrirtækja hefur étist upp. Þegar samanlagðar skuldir eru dregnar frá eignum standa nú eftir 177 milljarðar saman borið við tæplega 7200 milljarða árið áður. Eigið fé íslenskra fyrirtækja hefur því rýrnað um rúma sjö þúsund milljarða milli ára. Föllnu bankarnir eru plássfrekir í þessari úttekt en bankarnir þrír voru langstærstu fyrirtæki landsins áður en þeir fóru í þrot. Þá ber einnig að horfa til þess að fleiri félög voru rekin með hagnaði en tapi árið 2008 þrátt fyrir að þau séu heldur færri nú en áður. Friðrik Már Baldursson, segir að þetta megi rekja til annarsvegar falls íslensku krónunnar og hinsvegar hrun fjármálakerfisins. Tölurnar sýni afleiðingar hrunsins svart á hvítu. Hinsvegar verði að hafa það hugfast að þúsundir fyrirtækja séu enn í ágætis rekstri.
Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Viðskipti innlent TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Sjá meira