Evrugengi Microsoft heldur áfram, hefur sparað 1,5 milljarð 5. janúar 2010 10:50
Viðskipti Microsoft við íslensk fyrirtæki, stofnanir og almenning munu verða gerð á evrugenginu 145 krónum fram til 31. mars. Sérstakt Microsoft-gengi hefur verið notað hér á landi í rúmt ár en það var innleitt í byrjun desember 2008 til að bregðast við algjöru frosti á hugbúnaðarmarkaðnum í kjölfar bankahrunsins og falls krónunnar. Sparnaður af genginu hefur sparað 1,5 milljarð kr. Í tilkynningu segir að það sé Microsoft Íslandi sem hefur samið við höfuðstöðvar Microsoft um notkun sérstaks gengis í viðskiptum hér á landi. Grunnhugsunin hefur frá upphafi verið að með þessu sé Microsoft að standa með viðskiptavinum sínum á tímabundnu erfiðleikaskeiði. Væntingar Microsoft um að afar lágt gengi krónunnar sé einungis tímabundið hafa hins vegar ekki gengið eftir. Því hefur evrugengi krónunnar í viðskiptum með Microsoft-hugbúnað gefið nokkuð eftir. Fyrstu sjö mánuðina var það 120, á síðari helmingi ársins 2009 var það 130 og verður 145 krónur fram til 31. mars. „Það er ekkert launungarmál að samningaviðræðurnar um áframhald Microsoft-gengisins voru erfiðari nú heldur en áður. Viðsemjendum okkar þykir sem stöðugleiki hafi náðst í gengi íslensku krónunnar í kringum evrugengið 180 og við þurfum að sýna þeim fram á að það sé í skjóli óeðlilegra aðstæðna og gengishafta og að óvissuþættir séu margir. Niðurstaðan varð að miða við gengið 145 sem léttir undir með íslensku efnahagslífi og þýðir áframhaldandi gjaldeyrissparnað í hugbúnaðarviðskiptum hér á landi. Um leið sýnir þetta að Microsoft hefur trú á því að ástandið muni batna á komandi mánuðum þótt við höfum vissulega orðið fyrir vonbrigðum með það hversu hægt hefur gengið," segir Halldór Jörgensson, framkvæmdastjóri Microsoft Íslandi. Gróflega áætlað má segja að Microsoft-gengið hafi sparað íslensku efnahagslífi ríflega 1,5 milljarð króna í gjaldeyri frá því að það var tekið upp. Jafnframt hafa ýmsir aðrir hugbúnaðarframleiðendur fylgt fordæmi Microsoft, þannig að um umtalsverða fjármuni er að ræða. Um leið hefur verkefnið þýtt að mörgum stjórnendum hefur þrátt fyrir takmörkuð fjárráð tekist að ráðast í hugbúnaðarfjárfestingar nú sem leiða til mikilvægrar hagræðingar í rekstri á komandi misserum. „Við finnum vel hvernig hefur þrengt að fyrirtækjum og stofnunum hér á landi síðustu mánuðina og einmitt í slíku ástandi er mikilvægt að geta nýtt alla hagræðingarkosti. Þessar mótvægisaðgerðir Microsoft Íslandi skila sér þannig ekki bara beint sem lægri rekstrarkostnaður í dag, heldur líka sem aðstoð við að endurbæta upplýsingatæknikerfi fyrirtækja og stofnana sem mun skila arði langt fram á næsta uppsveifluskeið," segir Halldór.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira