Lífeyrissjóðir kaupa Lúxemborgarbréf Seðlabankans 31. maí 2010 09:09 Samkvæmt samkomulaginu munu lífeyrissjóðirnir selja erlendar eignir og greiða fyrir bréfin í evrum, alls um 549 milljónir evra. Við þessi viðskipti eykst gjaldeyrisforði Seðlabanka Íslands um 82 milljarða króna (512 milljónir evra) eða sem nemur 17%.
Seðlabanki Íslands hefur fyrir hönd ríkissjóðs náð samkomulagi við 26 lífeyrissjóði um kaup þeirra á íbúðabréfum í eigu ríkissjóðs. Ríkissjóður og Seðlabankinn eignuðust bréfin meðal annars með samningum við Seðlabanka Lúxemborgar og skiptastjóra Landsbankans í Lúxemborg 18. maí síðastliðinn.Í tilkynningu segir að heildarnafnverð bréfanna er 90,2 milljarðar kr. Salan er gerð með það fyrir augum að auka gjaldeyrisforðann. Jafnframt lækkar hún hreina skuld ríkissjóðs í erlendri mynt sem hafði aukist vegna fjármögnunar áðurnefndra samninga í Lúxemborg.Samkvæmt samkomulaginu munu lífeyrissjóðirnir selja erlendar eignir og greiða fyrir bréfin í evrum, alls um 549 milljónir evra. Við þessi viðskipti eykst gjaldeyrisforði Seðlabanka Íslands um 82 milljarða króna (512 milljónir evra) eða sem nemur 17%.Salan fór fram í lokuðu útboði sem lauk í gær, 30. maí, en þar var öllum almennu lífeyrissjóðunum í landinu boðin þátttaka. Ekki var unnt að koma við opnu útboði vegna flókinna skilyrða og fyrirvara sem fylgja sölunni, svo sem varðandi óvissa afhendingu. Þá var nauðsynlegt að flýta samningum til að eyða óvissu og mögulegum markaðsáhrifum sem óhjákvæmilega leiða af sölu á svo miklu magni íbúðabréfa.Lífeyrissjóðirnir voru valdir til að taka þátt í þessu lokaða útboði þar sem þeir eru fyrir stærstu eigendur húsbréfa, enda falla þau vel að fjárfestingarstefnu þeirra og skuldbindingum. Þeir eiga umtalsverðar erlendar eignir og stuðla með þátttöku sinni í viðskiptunum að því að skapa betri skilyrði fyrir afnámi gjaldeyrishafta.Lífeyrissjóðirnir þóttu henta vel til að mæta þörfum Seðlabankans við að ljúka viðskiptunum á skömmum tíma, en það dregur verulega úr óvissu og áhrifum þessara stóru viðskipta á innlendan skuldabréfamarkað. Þar sem lífeyrissjóðirnir eru langtímafjárfestar mun það gera Seðlabankanum auðveldara fyrir þegar hafist verður handa við næstu skref í afnámi gjaldeyrishaftanna.
Mest lesið Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Viðskipti innlent Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Sjá meira