Viðskipti innlent

Aflaverðmætið jókst um 28% fyrstu tvo mánuði ársins

Verðmæti þorskafla var um 9,5 milljarðar kr. og jókst um 34,1% frá fyrra ári.
Verðmæti þorskafla var um 9,5 milljarðar kr. og jókst um 34,1% frá fyrra ári.

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 20,6 milljörðum króna á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2010 samanborið við 12,3 milljarða kr. á sama tímabili 2009. Aflaverðmæti hefur því aukist um 4,5 milljarða kr. eða 28,1% á milli ára.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að aflaverðmæti botnfisks var í lok febrúar orðið 16,3 milljarðar kr. og jókst um 29,7% frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam tæpum 12,6 milljörðum kr.

Verðmæti þorskafla var um 9,5 milljarðar kr. og jókst um 34,1% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam tæpum 2,9 milljörðum klr. og jókst um 21,7%, en verðmæti karfaaflans nam rúmum 1,8 milljörðum kr. , sem er 18% aukning frá fyrstu tveimur mánuðum ársins 2009. Verðmæti ufsaaflans jókst um 39,1% milli ára í 840 milljónir kr.

Verðmæti flatfiskafla nam tæpum 1,3 milljörðum króna í janúar til febrúar 2010, sem er 27,1% aukning frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 53,4% milli ára og nam tæpum 3 milljörðum.

Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 9,5 milljörðum króna og jókst um 43,9% frá árinu 2009. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 38,9% milli ára og var um 3,8 milljarðar. Aflaverðmæti sjófrystingar var 5,6 milljarðar sem 58,6% aukning milli ára.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×