Viðskipti innlent

Nefndarmenn voru sammála um stýrivaxtalækkunina

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Allir fulltrúar í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands samþykktu tillögu seðlabankastjóra um 0,75 prósentustiga vaxtalækkun á fundi nefndarinnar fyrir síðasta vaxtaákvörðunardag.

Í fundargerð nefndarinnar segir að nefndarmenn hafi rætt þann möguleika að lækka vextina um 0,5-1,25 prósentur. Rök þeirra nefndarmanna sem vildu taka minni skref en seðlabankastjóri voru þau að aðhald peningastefnunnar þyrfti að vera meira þar sem styttist í væntanlegt afnám gjaldeyrishaftanna.

Rök þess nefndarmanns sem vildi meiri vaxtalækkun voru þau að aðhald peningastefnunnar mælt með raunvöxtum væri líklega vanmetið, þar sem mæld verðbólga endurspeglaði fyrst og fremst gengisbreytingar síðastliðna tólf mánuði.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×