Viðskipti innlent

Þriðjungur fyrirtækja er tæknilega gjaldþrota

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Um þriðjungur íslenskra fyrirtækja, eða á bilinu 5-7 þúsund, skulda meira en rekstur þeirra þolir til lengri tíma. Þetta kemur fram í Hagsýn, nýju vefriti efnahags- og viðskiptaráðuneytisins.

Í ritinu segir að úrvinnsla skuldamála fyrirtækja hafi gengið allt of hægt á undanförnum mánuðum. „Óvissa bankanna um svigrúm þeirra til aðgerða hefur tafið fyrir verkefninu. Nú liggur fyrir að svigrúm bankanna til niðurfærslu lána til fyrirtækja er umtalsvert. Lánastofnanir hafa mikla hagsmuni af endurskipulagningu, til að tryggja endurgreiðslur lána til framtíðar. fyrirtækin hafa mikla hagsmuni af því að skuldir þeirra verði samræmdar greiðslugetu og þeim þar með tryggt að þau geti starfað áfram, eflt rekstur sinn og fjölgað starfsfólki," segir í ritinu. .

Þá segir ráðuneytið að stjórnvöld gegni lykilhlutverki við að greiða úr stöðunni. Ólíkir kröfuhafar þurfi að koma að verki ef skuldaaðlögun fyritækis eigi að geta gengið hratt fyrir sig. Fjármálastofnanir, stórir birgjar og opinberir aðilar þurfi hver um sig að endurmeta kröfur sínar. „Gæta verður þess að einstaka aðilar fái ekki óeðlilega fyrirgreiðslu á meðan litil og meðalstór fyrirtæki með góðar rekstrarhorfur sitja eftir með sárt ennið," segir í ritinu. Þá verði að gera upp ólífvænleg fyrirtæki eins fljótt og kostur sé. Stjórnvöld þurfi einnig að setja skýr markmið og aðstoða við úrlausn deilumála mili kröfuhafa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×